Fara í efni
Pistlar

Fögnuðu 10 ára afmæli með stæl – MYNDIR

Nokkur þeirra sem hlupu 100 kílómetra í fjallahlaupinu sem kennt er við Súlur, fljótlega eftir að hópurinn var ræstur við Goðafoss á föstudagskvöldið. Mynd: Ármann Hinrik

Fjallahlaupið Súlur vertical var þreytt í 10. skipti á laugardaginn og hér er boðið til mikillar myndaveislu úr hlaupinu í tilefni afmælisins.

Hæst bar, eins og Akureyri.net hefur þegar greint frá, að Elísa Kristinsdóttir bætti brautarmet kvenna í 100 kílómetrum um 90 mínútur! Elísa hljóp vegalengdina á 10 klukkutímum, 45 mínútum og 17 sekúndum og fyrsti karlinn, Felix Starker, kom rúmum klukkutíma á eftir Elísu í mark.

Ofurhlauparinn Þorbergur Ingi Jónsson, upphafsmaður þessa vinsæla fjallahlaups árið 2016, sem sigraði í 100 km í fyrra, hljóp í þetta sinn 43 km og bætti brautarmetið um rúma mínútu; Þorbergur Ingi hljóp á rúmum fjórum  klukkustundum – 4:01:58. Gamla brautarmetið setti Þorsteinn Roy Jóhannsson árið 2023.

Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í 100 km hlaupinu í fyrra, hljóp þá á rúmum 12 klukkustundum – 12:14:33, og það var brautarmetið þar til Elísa stórbætti það á laugardag. Elísa varð í öðru sæti í fyrra á 13:12:44 þannig að tími hennar nú var nærri tveimur og hálfum klukkutíma betri en á síðasta ári!

Um 650 hlauparar tóku þátt í viðburðinum sem fram fór í blíðskaparveðri en á sumum köflum leiðarinnar var heldur hvasst að mati hlauparanna. Allt gekk þó vel fyrir utan að einn keppandi sneri sig illa á ökkla. Viðkomandi var staddur langt inn á Glerárdal þannig að gripið var til þess ráðs að félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, óku á svokölluðum böggí-bíl þangað inn eftir og sóttu hlauparann.

Öll úrslit í hlaupinu á laugardaginn

Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
03. ágúst 2026 | kl. 14:30

Of gamall til að greiða atkvæði

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
01. ágúst 2026 | kl. 06:00

Gráelri og náskyldar tegundir

Sigurður Arnarson skrifar
29. júlí 2026 | kl. 10:30

Hvað er sjálfsrækt?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
28. júlí 2026 | kl. 06:00

Eyðum tómlæti í garð Hámundar heljarskinns!

Orri Páll Ormarsson skrifar
24. júlí 2026 | kl. 06:00

Áhrif ísaldar á gráelrideildina

Sigurður Arnarson skrifar
22. júlí 2026 | kl. 12:30