Fara í efni
Pistlar

Silkeborg: Gervigras og 10.000 áhorfendur

JYSK Park - heimavöllur Silkeborg. Hann rúmar 10.000 áhorfendur, þar af 6.000 í sæti. Hægra megin á myndinni er íþróttahöllin JYSK Arena, heimavöllur handboltaliðsins Bjerringbro-Silkeborg.

Danska liðið Silkeborg, sem KA mætir í Evrópukeppninni í knattspyrnu, leikur á JYSK leikvanginum í Silkeborg. Völlurinn er lagður gervigrasi og leikvangurinn rúmar 10.000 áhorfendur, þar af eru sæti fyrir 6.000 manns.

JYSK hljómar kunnuglega í eyrum Akureyringa; um er að ræða verslunarkeðjuna þekktu sem lengi vel kallaðist Rúmfatalagerinn hér á landi en ber nú nafnið JYSK eins og erlendis. JYSK hefur verið aðalstyrktaraðili knattspyrnuliðs Silkeborgar síðan árið 2021.

  • Silkeborg er á Mið-Jótlandi. Íbúar borgarinnar er um 45.000.
  • Silkeborg varð danskur bikarmeistari á síðasta ári. Liðið sigraði AGF 1:0 í úrslitaleik á Parken í Kaupmannahöfn.
  • Silkeborg lék aftur til úrslita í bikarkeppninni í ár en tapaði 3:0 fyrir FC Kaupmannahöfn í úrslitaleiknum sem fram fór á MCH leikvanginum í Herning 29. maí síðastliðinn.
  • Silkeborg varð í sjöunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í vor. Í deildinni eru 12 lið eins og á Íslandi og keppni skipt í tvennt að lokinni hefðbundinni tvöfaldri umferð. Að loknum 22 umferðum voru bæði Silkeborg og Brøndby með 33 stig en síðarnefnda liðið hreppti sjötta sæti því það var með örlítið betri markatölu – var einu marki meira í plús!
  • Silkeborg lék því í neðri hluta deildarinnar síðari hluta mótsins og varð efst í keppni þeirra sex liða. Þar af leiðandi mætti Silkeborg liði Randers, sem varð í fjórða sæti deildarinnar, í aukaleik um sæti í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu og Silkeborg vann þann leik 3:1.
  • Keppni í úrvalsdeildinni hefst á ný í næsta mánuði. Silkeborg mætir Bröndby IF á útivelli í fyrstu umferð mánudaginn 21. júlí, þremur dögum áður en KA kemur í heimsókn.
  • Leikvangur Silkeborgarliðsins, JYSK Park, sem sagður er einkar glæsilegur, var tekinn í notkun sumarið 2017.
  • Við hlið knattspyrnuvallarins er íþróttahúsið JYSK Arena, heimavöllur handboltaliðsins Bjerringbro-Silkeborg.
  • Lars Larsen, sem stofnaði árið 1979 fyrirtækið sem í dag kallast JYSK, bjó í þrjá áratugi í litlu þorpi rétt utan við Silkeborg. Lars lést árið 2019 og fyrirtækið er nú rekið af fjölskyldu hans.
  • Næstu stóru flugvellir við Silkeborg eru í Billund (í um 54 km fjarlægð) og í Árósum – Århus (69 km).

Frétt Akureyri.net í hádeginu: 

KA mætir Silkeborg í Evrópukeppninni

Hús dagsins: Aðalstræti 50

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. júní 2025 | kl. 08:30

Eftirmatur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
23. júní 2025 | kl. 11:30

Frá morgni til kvölds

Jóhann Árelíuz skrifar
22. júní 2025 | kl. 06:00

Svipmynd úr bernsku

Kristín Aðalsteinsdóttir skrifar
20. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Rögnvaldsson – Mikilhæfur leiðtogi

Sigurður Arnarson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:00

Mokkaskinn

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
16. júní 2025 | kl. 11:30