Fara í efni
Pistlar

Nýir deildarforsetar fimm deilda hjá HA

Mynd: Þorgeir Baldursson

Miðvikudaginn 1. júlí tóku fimm nýskipaðir deildarforsetar til starfa hjá Háskólanum á Akureyri (HA). Forseti fræðasviðs skipar deildarforseta til tveggja ára í senn samkvæmt tilnefningu deildarfundar. Nýir deildarforsetar hafa verið skipaðir fyrir félagsvísindadeild, iðjuþjálfunarfræðideild, kennaradeild, lagadeild og sálfræðideild og munu því leiða deildirnar næstu tvö árin.

Í frétt á vefsíðu HA kemur fram að fræðasvið háskólans séu tvö: Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið og hug- og félagsvísindasvið. Innan fræðasviðanna eru svo starfræktar deildir sem eru faglegar grunneiningar háskólans sem starfa á vettvangi fræðasviðanna.

  • Markus Meckl prófessor tekur við sem deildarforseti félagsvísindadeildar. Í kveðju sinni bendir Markus á fjölbreytileika deildarinnar og segir hann einn helsta styrkleika hennar enda virða áhugaverðustu spurningarnar sjaldnast mörk fræðigreina.
  • Í iðjuþjálfunarfræðideild tekur Sara Stefánsdóttir lektor við sem deildarforseti. Sara leggur áherslu á að iðjuþjálfun snúist um fólk, samfélög og þær fjölmörgu leiðir sem hægt er að nýta til að efla þátttöku, heilsu og vellíðan.
  • Í kennaradeild tekur Sigríður Margrét Sigurðardóttir dósent við sem deildarforseti. Sigríður segir deildina gegna lykilhlutverki í menntun kennara og skólastjórnenda og að rannsóknir, gagnrýnin hugsun og fagmennska séu leiðarljós í starfi deildarinnar.
  • Valgerður Guðmundsdóttir lektor verður deildarforseti lagadeildar. Valgerður leggur áherslu á fjölbreytt og krefjandi nám sem undirbúi stúdenta fyrir framtíðarstarfsvettvang og nefnir sérstaklega náið námsumhverfi þar sem áhersla er lögð á skoðanaskipti og rökfræði.
  • Mehmet Harma prófessor tekur við sem deildarforseti sálfræðideildar. Mehmet segir sálfræðina fást við nokkrar af áhugaverðustu og mikilvægustu spurningum vísindanna og leitast við að skilja hvernig fólk hugsar, upplifir og hegðar sér.

Samanburður broddhlyns og garðahlyns

Sigurður Arnarson skrifar
14. október 2026 | kl. 10:45

Lífið í búningsklefanum

Pétur Guðjónsson skrifar
12. október 2026 | kl. 13:30

Vænting

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
11. október 2026 | kl. 06:00

Þegar vinnan er farin í hundana

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
10. október 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Norðurgata 26

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. október 2026 | kl. 10:45

Tegundir birkiættkvíslarinnar

Sigurður Arnarson skrifar
07. október 2026 | kl. 14:30