Fara í efni
Pistlar

Langt á undan áætlun - er röðin komin að þér?

Sprautan á lofti á Slökkvistöðinni á Akureyri. Bólusetning fer fram þar sem fyrr. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) fær um 6.400 skammta af bóluefni gegn Covid-19 í næstu viku, fleiri en nokkru sinni í einni sendingu. Mun hraðar gengur á „handahófslistann“ svo fjöldi fólks fær bólusetningu mun fyrr en talið var mögulegt – sjá uppfærðan lista hér að neðan.

Pfizer bóluefnið verðu m.a. nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu sama efni 26. til 28. maí, skv. upplýsingum frá HSN.

Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu.

Nýir skammtar af Pfizer og Janssen bóluefninu verða notaðir samkvæmt handahófs bólusetningalista.

Fólk er hvatt til að skrá símanúmer sín í Heilsuveru, „einnig passa upp á að yngra fólkið og útlendingar sem búa á svæðinu skrái símanúmer sín,“ segir í tilkynningu frá HSN.

Sem fyrr er bólusett á Slökkvistöðinni á Akureyri.

„Handahófslistinn“

Svona leit listinn, sem settur var saman með því að draga árganga af handahófi, þegar Akureyri.net birti hann fyrir tveimur dögum. Þeir árgangar sem nú eru rauðlitaðir ættu allir að geta fengið bólusetningu í næstu viku, margir viku á undan áætlun og árgangar 1973 og 1991 tveimur vikum fyrr en ráðgert var. Athugið að HSN birtir þetta með fyrirvara um breytingu.

Vika 24 – 15. til 18. júní

1967

1974

1995

1999

2001

1968

1984

1988

1982

Vika 25 – 22. til 25. júní

2003

1996

2005

1969

2004

1970

1972

1998

2000

Vika 26 – 29. júní til 2. júlí

1973

1991

1994

1978

1985

1983

1990

1987

1975

1979

1980

Bólusett þriðjudag, miðvikudag og föstudag

Nýjustu upplýsingar frá HSN eru þessar:

  • Þriðjudaginn 15. júní er seinni bólusetning með Pfizer. Ekki er hægt að fá fyrri bólusetningu af Pfizer þennan dag. Einnig verður seinni bólusetning þeirra sem fengu Astra Zeneca 30. mars. Þeir einstaklingar verða í forgangi fyrir Astra Zeneca þennan dag. Ef þú vilt flýta seinni Astra Zeneca bóluetningu þinni, máttu koma í lok dags klukkan 16:30 og athuga hvort hægt sé að verða við því. Ráðlagt er að það séu 10 til 12 vikur milli skammta.
  • Miðvikudaginn 16. júní verður haldið áfram að bólusetja fyrri bólusetningu með Pfizer og munum við fara áfram niður handahófslista. SMS boð verður send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er frá klukkan 09:00 til 14:00.
  • Föstudaginn 18. júní verður haldið áfram að bólusetja með Janssen og munum við fara áfram niður handahófslista. Athugið að bólusetning með Janssen er einungis eitt skipti. SMS boð verður send til þeirra sem býðst bólusetning þennan dag. Bólusett er frá kl. 09:00 til 14:00.
  • Athugið: Ekki er hægt að óska eftir öðru bóluefni en því sem fólk fær boð um.
  • Athugið: Árgangur 2005 verður einungis bólusettur miðað við afmælisdag, þ.e. þeir sem náð hafa 16 ára aldri skv. dagatali.

Bólusetning er í boði fyrir:

  • Þá sem fá boð um að mæta þessa daga.
  • Þá sem eru fæddir 1966 og fyrr.
  • Þá sem tilheyra árgangshópi sem búið er að draga út.
  • Þá sem hafa fengið boð en hafa ekki nýtt sér það.

Árvakur slökkviliðsmaður hefur jafnan fylgst með nýbólusettum í „hvíldarsalnum“ og svo verður áfram. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

 

Kvenfélagið Hlíf

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
19. mars 2024 | kl. 06:00

Lagning

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
18. mars 2024 | kl. 11:30

Í leikhúsi hugans

Jón Óðinn Waage skrifar
17. mars 2024 | kl. 11:50

Hvar fær maður svona engisprettu?

Rakel Hinriksdóttir skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:00

Hin evrópska olía: Olea europaea L.

Sigurður Arnarson skrifar
13. mars 2024 | kl. 10:25

Siginn fiskur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
11. mars 2024 | kl. 11:30