Fara í efni
Pistlar

Komið að ögurstundum hjá karlaliði Þórs

Christian Caldwell, til vinstri, og Pétur Cariglia verða í eldlínunni í kvöld þegar Þórsarar fá lið Hamars í heimsókn. Myndir: Guðjón Andri Gylfason.

Karlalið Þórs í körfubolta hefur verið í ströggli í 1. deildinni í vetur og setið í þriðja neðsta sæti deildarinnar lengst af. Lokaumferðirnar verða spennandi og mikilvægir leikir fram undan hjá Þórsurum því þeir mæta liðunum tveimur fyrir neðan sig í tveimur af þremur síðustu leikjunum. Þórsarar unnu bæði þessi lið í fyrri umferðinni.

Þórsarar taka á móti Hamri í 20. umferðinni í kvöld, í síðasta heimaleik sínum í deildinni í vetur, en sækja síðan Fylki og Selfyssinga heim í tveimur síðustu umferðunum.

  • 1. deild karla í körfubolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Hamar
  • Útsending: Sýn, KKÍ TV2
    Áskriftarsjónvarp

Þór vann fyrri viðureignina gegn Hamri í byrjun desember með 26 stiga mun, 115-89, þegar liðin mættust í Hveragerði. 

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30

Knappareynir

Sigurður Arnarson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00