Þórsarar bæta við 300 miðum – seldir í Hamri
Mikil ásókn var í miða á leik Þórs og KA í Bestu deildinni í knattspyrnu á morgun og þeir 1500 sem voru seldir runnu út eins og heitar lummur. Vegna mikillar eftirspurnar gripu Þórsarar til þess bragðs að útbúa stæði fyrir fleiri áhorfendur við nýja gervigrasvöllinn, VÍS-völlinn, þar sem leikið verður á morgun og tilkynntu í dag að 300 viðbótar miðar séu nú í boði.
Miðarnir verða seldir í félagsheimili Þórs, Hamri, til kl. 19.00 í kvöld og frá kl. 10.00 í fyrramálið. Hamar verður opnaður fyrir stuðningsmönnum kl. 13.00 á morgun, tónlistarmaðurinn Rúnar Eff mætir með gítarinn og spilar og syngur á milli kl. 14.00 og 15.00 og flautað verður til leiks kl. 16.00.
Þetta er fyrsta viðureign Akureyrarliðanna i efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í 24 ár – síðan sumarið 2002, og spenningurinn mikill í herbúðum beggja.
Og guðirnir hlógu á meðan, digrum guðahlátri
Síðlaufgaður gulvíðir
Geðheilsuefling Andrésar andar
Hús dagsins: Gránufélagsgata 18