KA féll úr leik í bikarnum gegn Víkingi
KA féll úr leik í bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarnum, eftir 35:28 tap gegn Víkingi á útivelli í gærkvöld. Víkingar voru yfir nánast allan leikinn en KA þó aldrei langt undan. Á síðustu 10 mínútunum slitu Víkingar sig hins vegar frá KA og kláruðu leikinn með sannfærandi sigri.
Jafnt var á flestum tölum framan af leiknum en Víkingar náðu síðan frumkvæðinu og leiddu með 2-3 mörkum fram að hléi. Staðan var 20:17 þeim í vil þegar fyrri hálfleik lauk og KA gerði síðan fyrsta markið í seinni hálfleik. Gestirnir náðu samt aldrei að komast almennilega inn í leikinn, Víkingar áttu alltaf svör og hleyptu KA-mönnum aldrei of nálægt. Í stöðunni 28:26 gáfu Víkingar síðan í og unnu að lokum 7 marka sigur, 35:28.
Víkingur er því kominn áfram í 8 liða úrslitin en KA er úr leik. Dagur Árni Heimisson var sem fyrr atkvæðamestur í sóknarleik KA og gerði 13 mörk. Andri Freyr Friðriksson var með 5 en aðrir náðu sér ekki á strik í sókninni. Vörnin var heldur ekki upp á sitt besta og markvarslan hefur oftast verið betri.
Bjarni Ófeigur meiddur á auga
Bjarni Ófeigur Valdimarsson var fjarri góðu gamni annan leikinn í röð, eftir að hafa meiðst í viðureigninni gegn Valsmönnum þann 25. september. Bjarni Ófeigur fékk þá högg á augað og varð fyrir áverka á augnbotni. Í samtali við Handkastið kemur fram að honum hefur verið gert að halda sig frá allri hreyfingu næstu vikurnar á meðan hann er að jafna sig. „Málið er að ég má ekki fá púlsinn upp því þá getur verið hætta á blæðingu inn í auganu út af þrýstingi og gæti þá misst sjón varanlega,“ sagði Bjarni í viðtalinu við Handkastið. Ljóst er að hann missir af næstu 2-3 leikjum liðsins í það minnsta.
Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 13, Andri Freyr Friðriksson 5, Arnór Ísak Haddsson 2, Dagur Gautason 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Morten Linder 2, Daði Jónsson 1, Einar Birgir Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 9, Bruno Bernat 1.
Mörk Víkings: Sigurður Páll Matthíasson 8, Jón Karl Einarsson 6, Elvar Otri Hjálmarsson 4, Kristján Helgi Tómasson 4, Ásgeir Snær Vignisson 3, Halldór Ingi Óskarsson 3, Þorgeir Bjarki Davíðsson 3, Ísak Óli Eggertsson 2, Kristófer Snær Þorgeirsson 1, Rytis Kazakevicius 1.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 12.
Hús dagsins: Norðurgata 26
Tegundir birkiættkvíslarinnar
Ljósi varpað á leyndardóma heilans
Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?