KA hristi Selfoss af sér undir lokin
KA jafnaði Valsmenn í 3. sæti efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildinni, með sigri á heimamönnum á Selfossi í gærkvöld. Eftir að leikurinn hafði verið jafn nánast allan tímann tryggðu KA-menn sér öruggan 36:30 sigur með því að skora 5 síðustu mörk leiksins.
KA byrjaði betur í leiknum og komst snemma þrem mörkum yfir. En botnlið Selfyssinga, sem hafði aðeins nælt sér í eitt stig úr fyrstu 9 umferðunum, vann það forskot upp og komst meira að segja yfir um tíma. Annars var jafnt á flestum tölum og KA var marki yfir í leikhléi, 15:14, eftir að hafa skorað síðasta mark hálfleiksins.
KA bætti í forskotið framan af seinni hálfleik og eftir 10 mínútur var forystan orðin 4 mörk, 23:19, og allar líkur á mótspyrna heimaliðsins hefði verið brotin á bak aftur. En þeir svöruðu fyrir sig með góðum kafla og nokkrum mínútum síðar var allt jafnt, 24:24. Spennan hélst áfram en KA var þó skrefi á undan. Leikur Selfyssinga hrundi svo í lokin og eftir að staðan hafði verið 31:30 fyrir KA, og um fjórar mínútur til leiksloka, skoruðu KA-menn síðustu fimm mörkin í leiknum og tryggðu sér öruggan sigur. Þar af gerði Arnór Ísak Haddsson síðustu þrjú mörk leiksins á síðustu 90 sekúndunum!

Arnór Ísak Haddsson lét til sín taka í sókninni undir lokin og gerð öll sín 3 mörk á síðustu 90 sekúndunum. Mynd: Ármann Hinrik.
Nágrannaslagur í næstu umferð
Þetta var sjöundi sigur KA í fyrstu 10 leikjunum og líklega torsóttari en margir bjuggust við fyrirfram, enda virðist Selfoss með slakasta liðið í deildinni. Bjarni Ófeigur Valdimarsson steig upp í sóknarleiknum og gerði 8 mörk en Dagur Árni Heimisson, sem hefur farið mikinn í markaskorun, lét sér duga að skora tvívegis úr víti. Þá átti Morten Linder sinn besta leik í vetur, skoraði 5 mörk og gaf 8 stoðsendingar. Þá var Jens Bragi Bergþórsson drjúgur í vörninni en einn helsti varnarmaður liðsins, Daníel Matthíasson, var ekki með að þessu sinni. Markverðir KA vörðu einnig töluvert fleiri skot en Alexander í marki Selfoss.
Einn þriggja tapleikja KA kom í grannaslagnum gegn Þór í 3. umferð deildarinnar og liðin mætast einmitt í næstu umferð, þar sem KA gefst tækifæri á að koma fram hefndum. Sá leikur fer fram í Höllinni sunnudaginn 22. nóvember kl. 20.
Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 8, Andri Freyr Friðriksson 5, Dagur Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 5, Morten Linder 5, Arnór Ísak Haddsson 3 (1 víti), Jens Bragi Bergþórsson 3, Dagur Árni Heimisson 2 (2 víti).
Varin skot: Bruno Bernat 11 (af 28) – 39%, Ágúst Elí Björgvinsson 7 (af 19) – 37%
Mörk Selfoss: Ragnar Hilmarsson 8, Hannes Höskuldsson 5 (1 víti), Hákon Garri Gestsson 4, Tryggvi Sigurberg Traustason 4, Þorleifur Tryggvi Ólafsson 4, Sveinn Ísak Hauksson 2, Alexander Hrafnkelsson 1, Skarphéðinn Steinn Sveinsson 1, Valdimar Örn Ingvarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 7 (1 víti) af 43 – 16%
Akureyrin í Þorvaldi
Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg
Hraunfellsbræður
Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá