Fara í efni
Pistlar

Hulda Ósk komin með 200 leiki í efstu deild

Hulda Ósk Jónsdóttir í leik með Þór/KA í Bestu deildinni í fyrra, en hún hefur nú leikið 84 leiki í röð með liðinu í efstu deild. Mynd: Ármann Hinrik

Hulda Ósk Jónsdóttir, Þingeyingurinn í liði Þórs/KA, lék sinn 200. leik í efstu deild þegar Akureyrarliðið tapaði 2:0 fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum á sunnudaginn. Þar af eru 184 leikir fyrir Þór/KA og hún er þriðja leikjahæst í liðinu á eftir Örnu Sif Ásgrímsdóttur (201) og Söndru Maríu Jessen (190).

Íþróttafréttamaðurinn Víðir Sigurðsson vekur athygli á þessu á Facebook síðu sinni í gærkvöldi.

Víðir segir: „Hulda lék einnig 16 leiki fyrir KR í deildinni árið 2015. Til viðbótar hefur Hulda spilað 32 leiki í 1. deild með Völsungi og KR. Hún hefur leikið með Þór/KA frá 2016 og eins og áður hefur komið fram hefur hún leikið lengst allra núverandi leikmanna deildarinnar án þess að missa úr leik. Hulda hefur nú leikið síðustu 84 leiki Akureyrarliðsins í efstu deild.“

Glímt við Selána

Jóhann Árelíuz skrifar
10. maí 2026 | kl. 06:00

Hús dagsins: Sæborg í Glerárþorpi

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
09. maí 2026 | kl. 06:00

Attenborough og trjávernd

Sigurður Arnarson skrifar
08. maí 2026 | kl. 21:00

Að bjarga heyi. Skáldin um landlæsi

Sigurður Arnarson skrifar
06. maí 2026 | kl. 18:00

Persónuleiki og fíkn

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
06. maí 2026 | kl. 06:00

Hversu vel hreyfist þú? Getur verið að þig vanti hreyfanleika?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
05. maí 2026 | kl. 06:00