Fara í efni
Pistlar

Handbolti: Þór tapaði gegn neðsta liðinu

Kári Kristján Kristjánsson, sem hér skorar gegn Selfossi í sigurleik Þórs í síðasta mánuði, var atkvæðamestur Þórsara gegn ÍR-ingum. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar heimsóttu ÍR-inga í 12. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í gærkvöld. Heimamenn voru skrefinu á undan Þórsurum að þessu sinni og lönduðu sínum fyrsta sigri í deildinni í vetur, 34:31. Sigur í leiknum hefði lyft Þórsurum lengra frá fallsvæðinu en tapið þýðir að liðið er ennþá í 10.-11. sæti.

ÍR-ingar náðu strax forystunni í leiknum og héldu Þórsurum í hæfilegri fjarlægð allan fyrri hálfleikinn. Í hléi var staðan 18:13 heimamönnum í vil. Framan af seinni hálfleik hélst þessi munur en eins og í mörgum öðrum leikjum í vetur óx Þórsurum ásmegin þegar líða tók á leikinn og Kári Kristján Kristjánsson raðaði inn mörkum. Forskot ÍR var komið niður í tvö mörk snemma í seinni hálfleik og hélst lengi í 2-3 mörkum. Og þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum minnkuðu Þórsarar muninn í eitt mark, 30:29, og allt gat gerst. En það sem gerðist hins vegar var að ÍR skoraði fjögur mörk á skömmum tíma og gerði út um leikinn. Þórsarar klóruðu í bakkann með tveimur mörkum á lokamínútunni en nær komust þeir ekki. Lokatölur 34:31.

Næsti leikur afar þýðingarmikill fyrir Þór

Eins og áður sagði hefði sigur í leiknum komið sér vel fyrir Þórsara í neðri hluta deildarinnar og í raun gríðarlega mikilvægt að taka stig úr viðureignum gegn hinum liðunum í þeim hluta deildarinnar. Það tókst ekki að þessu sinni en baráttan heldur áfram og næsti leikur liðsins er mikilvægur heimaleikur gegn Íslandsmeisturum Framara næstkomandi laugardag. Framarar hafa ekki verið sannfærandi í vetur og eru aðeins þremur stigum á undan Þórsurum.

Mörk Þórs: Kári Kristján Kristjánsson 9 (5 víti), Þórður Tandri Ágústsson 6, Brynjar Hólm Grétarsson 5, Hafþór Már Vignisson 3, Oddur Gretarsson 3, Þormar Sigurðsson 3, Hákon Ingi Halldórsson 2.

Varin skot: Nikola Radovanovic 7, Patrekur Guðni Þorbergsson 4.

Mörk ÍR: Baldur Fritz Bjarnason 8 (2 víti), Jökull Blöndal Björnsson 8, Sveinn Brynjar Agnarsson 7, Bernard Kristján Owusu Darkoh 5, Bjarki Steinn Þórisson 2, Elvar Otri Hjálmarsson 2, Eyþór Ari Waage 1, Róbert Snær Örvarsson 1.

Varin skot: Ólafur Rafn Gíslason 16 (1 víti), Alexander Ásgrímsson 1 (1 víti).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í deildinni

Þróun skógarbotnsins

Sigurður Arnarson skrifar
04. mars 2026 | kl. 08:30

Edda og ADHD greiningin

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Hús dagsins: Lundargata 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
01. mars 2026 | kl. 06:00

Innra með okkur öllum er Birtíngur

Rakel Hinriksdóttir skrifar
27. febrúar 2026 | kl. 13:00

Evrópskt gráelri - Fyrsti hluti

Sigurður Arnarson skrifar
25. febrúar 2026 | kl. 10:00

Við getum gert „allt“ … en ekki „allt á sama tíma“

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
24. febrúar 2026 | kl. 09:00