Fjörugur leikur en sjötta tap Þórs í röð
Þórsarar töpuðu sjötta deildarleiknum í röð þegar Stjörnumenn úr Garðabæ sóttu þá heim í gær. Þór er sem fyrr í 10. sæti þegar níu umferðum er lokið, með sex stig, FH er á botninum með tvö en ÍBV gjörsigraði lið Keflavíkur 6:1 og er nú aðeins einu stigi á eftir Þór. Stjarnan hafði ekki unnið í sex leikjum í röð þar til í gær, var stigi á undan Þór fyrir leikinn þannig að nú munar fjórum stigum á liðunum.
Nú verður gert tveggja vikna hlé á Bestu deildinni vegna landsleikja og áhugavert að fyrstu tveir leikir Þórs að því loknu eru við neðstu liðin; fyrst heima gegn ÍBV sunnudaginn 14. júní og síðan á útivelli gegn FH viku síðar.
Þórsliðið byrjaði mjög vel í gær og Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði strax á áttundu mínútu. Atli Sigurjónsson tók hornspyrnu frá hægri, boltinn fór af varnarmanni til Ágústs sem var einn vinstra megin í markteignum, Þórsarinn lagði boltann fyrir sig og þrumaði honum í fjærhornið. Glæsilega gert.




Ágúst Eðvald Hlynsson skorar fyrir Þór strax á áttundu mínútu. Glæsileg tilþrif. Myndir: Ármann Hinrik
Fyrri hálfleikurinn var stórskemmtilegur og bæði lið fengu góð færi til að skora. Áður en Ágúst kom boltanum í Stjörnumarkið hafði Emil Atlason þegar skallað boltann í stöng hinum megin eftir aukaspyrnu og strax eftir mark Ágúts varði Aron Birkir liðsfélagi hans mjög vel skot Birnis Snæs Ingasonar.
Eftir rúman hálftíma fékk Emil Atlason dauðafæri en skaut yfir Þórsmarkið, hinum megin var Sigfús Fannar í mjög góðu færi en boltinn fór naumlega framhjá og Emil var aftur á ferðinni við hinn enda vallarins en Aron Birkir varði, og einnig varði hann skalla Gustavs Kjeldsen.
Greko rekinn út af
Þegar um 15 mín. voru eftir af leiknum var Þórsarinn Christian „Greko“ Jakobsen rekinn af velli. Eftir aukaspyrnu datt hann með tilþrifum í vítateig Stjörnunnar, vildi meina að varnarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson hefði brotið á sér en dómarinn var ekki á sama máli. Varnarmaðurinn greip í hönd Þórsarans, en það var ekki áberandi og sennilega ekki nægilega mikið til að Þór fengi víti. Leikmennirnir skiptust á nokkrum vel völdum orðum, gesturinn úr Garðabæ náði augljóslega að reita Danann til reiði því eftir að „Greko“ stóð upp beitti hann „höfuð í höfuð“ aðferðinni ... Full mikið væri að segja að hann hefði skallað Guðmund, en rautt spjald var engu að síður réttur dómur.

Guðmundur Kristjánsson varnarmaður Stjörnunnar kom við sögu í eftirminnilegum atvikum. Á fyrstu myndinni eigast þeir við, hann og Ágúst Eðvald Hlynsson, rétt áður en Guðmundur lamdi Þórsarann í magann og á hinar þrjár eru teknar eftir viðskipti þeirra Christians „Greko“ Jakobsen þegar sá síðarnefndi var rekinn af velli. Myndir: Ármann Hinrik
Guðmundur heppinn
Í þessu sambandi verður að nefna afar einkennilegt atvik þegar um hálftími var liðinn af fyrri hálfleik þegar téður Guðmundur lamdi Ágúst Eðvald Hlynsson í magann út við hliðarlínu, rétt hjá varamannabekk Þórs og fjórða dómaranum. Þeir Ágúst höfðu verið að kljást andartaki áður, Þórsarinn hljóp nokkra metra til baka en þegar hann sneri við og skundaði fram völlinn beið Stjörnumaðurinn eftir honum og barði! Dómarinn virðist hafa séð atvikið því hann áminnti Guðmund – sýndi honum gula spjaldið. Fjórði dómarinn, sem stendur jafnan á mótum hliðarlínu og miðlínu, hlýtur einnig að hafa orðið þess var hvað gerðist. Einhvern tíma hefði slík hegðun þótt verðskulda rautt spjald!. Guðmundur slapp við áminningu, og þar með brottrekstur, eftir „viðskiptin“ við „Greko“ þegar rauða spjaldið fór á loft og verður að teljast heppnasti maður vallarins í gær!
Glæsileg mörk
Stjörnumenn voru betri í seinni hálfleik og sigur þeirra verðskuldaður miðað við gang leiksins. Þórsurum gáfu of mikið eftir og gekk illa að halda boltanum.
Daníel Finns Matthíasson jafnaði fyrir Stjörnuna snemma í seinna hálfleik með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu en hafði það verið vel gert bætti Emil Atlason hressilega um betur þegar um 20 mín. voru eftir þegar hann kom Stjörnunni í 2:1. Títtnefndur Guðmundur Kristjánsson þrumaði boltanum úr vörninni fram á miðjan vallarhelming Þórs, varnarmaðurinn Affi skallaði boltann til baka þar sem Emil kom aðvífandi, lék fáeina metra áfram og lét síðan vaða af um 30 metra færi og boltinn söng í netinu upp við samskeytin. Algjört draumamark og óverjandi skot, en miðjumenn Þórsara gleymdu sér í þetta skipti; voru ekki nógu fljótir til baka þannig að Emil var óvaldaður og gat athafnað sig að vild.
Haukur Örn Brink gerði þriðja mark Stjörnunnar í blálokin eftir snögga sókn þegar Þórsarar lögðu allt í sölurnar til að jafna og voru fáliðaðir aftast á vellinum.
Næstu leikir Þórs í deildinni:
- Sunnudag 14. júní kl. 17:00
Þór - ÍBV - Sunnudag 21. júní kl. 17:00
FH - Þór
Frá Búastöðum í Borgir
Æskuvinur minn Kunta Kinte
Um menntakerfið á tímum gervigreindar
Silkitoppa