Fara í efni
Pistlar

Fimm Þórsarar í U19 landsliðinu í fótbolta

Landsliðs-Þórsararnir þrír sem leika með meistaraflokki félagsins í sumar. Frá vinstri: Sverrir Páll Ingason, Einar Freyr Halldórsson og Ásbjörn Líndal Arnarsson. Myndir: Ármann Hinrik

Fimm Þórsarar eru í landsliðshópi U19 ára karla í knattspyrnu sem tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027. Leikmenn meistaraflokks Þórs, þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason eru í hópnum, auk Þórsaranna Egils Orra Arnarssonar og Sigurðar Jökuls Ingvasonar sem eru á mála hjá danska félaginu FC Midtjylland.

Í frétt á vefsíðu Þórs kemur fram að Ísland mætir Georgíu og Svartfjallalandi fyrstu umferðinni og verður riðillinn leikinn í Georgíu dagana 3.-10. júní. Liðið sem endar í efsta sæti riðilsins fer upp í A-deild undankeppninnar fyrir aðra umferð hennar.

Sigurður Jökull Ingvason og Egill Orri Arnarsson sem Þór seldi til FC Midtjylland í Danmörku árið 2024. Þeir eru báðir í herbúðum U19 liðs félagsins. 

Smellið hér til að sjá allan landsliðshópinn

Æskuvinur minn Kunta Kinte

Orri Páll Ormarsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 11:30

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00