Fara í efni
Pistlar

Fjórtán ára – fyrstu tvö meistaraflokksmörkin

Berglind Huld Ríkarðsdóttir með pökkinn sem hún skoraði fyrsta meistaraflokksmarkið sitt með. Myndir: Haraldur Ingólfsson.

Kvennalið SA í íshokkí vann lið Fjölnis með sjö marka mun í bráðfjörugum leik í Toppdeild kvenna í kvöld. Berglind Huld Ríkarðsdóttir, sem er tæpra 15 ára, skoraði sín fyrstu tvö mörk í meistaraflokki. 

Lið SA var bæði fjölmennara, öflugra og ágengara í sókninni en gestirnir úr Grafarvoginum, skapaði sér fleiri færi og átti mun fleiri markskot en gestirnir, 47 gegn 19 þegar upp var staðið.

Nýr markvörður Fjölnis, Cassandra Goyette, komst í sviðsljósið strax í fyrsta leik með liðinu í maraþonvítakeppni í leik liðsins gegn SR. Hún kom þó engum vörnum við þegar hin kornunga Berglind Huld Ríkarðsdóttir fékk pökkinn framan við mark Fjölnis náði skoti og pökkurinn endaði í netinu. Fyrsta mark Berglindar í meistaraflokki, en hún er á fimmtánda árinu. Silvía Rán Björgvinsdóttir bætti við öðru marki liðsins þar sem hún náði frákasti eftir að Cassandra í marki Fjölnis varði skot frá Aðalheiði Önnu Ragnarsdóttur.

Þriðja markið kom strax á fyrstu sekúndum annars leikhluta, raunar aðeins 26 leiksekúndum eftir annað markið (með leikhléi á milli). Þar var Guðrún Ásta Valentine á ferðinni. Silvía Rán bætti við öðru marki sínu og fjórða marki SA þegar stutt var liðið á annan leikhlutann, hélt þar með áfram að safna stigum í pokann, komin með 420 stig í deildarleikjum með SA, eins og fjallað var um í frétt akureyri.net í morgun. Silvía fékk pökkinn framan við mark Fjölnis, tók skemmtilega gabbhreyfingu og setti pökkinn af öryggi í netið.

SA-stelpurnar léku áfram við hvern sinn fingur og skemmtu áhorfendum. Um miðjan annan leikhlutann sýndi Sunna Björgvinsdóttir listir sýnar með pökkinn, skaut þá í slá og inn eftir góða sókn SA. Aftur nýttu þær lokasekúndur til að skora, rétt um 20 sekúndur eftir af öðrum leikhluta þegar SA vann pökkinn í eigin varnarsvæði og Sólrún Assa Arnardóttir brunaði upp hægri kantinn, komst ein inn fyrir vörn Fjölnis og skoraði sjötta markið. 

Sunna Björgvinsdóttir bætti við sjöunda marki SA og öðru marki sínu í leiknum þegar hún komst ein á móti markmanni eftir góðan undirbúning frá Guðrúnu Ástu Valentine. Skömmu áður en þriðji leikhluti var hálfnaður kom síðan eina mark gestanna þegar tvær af þeim reyndari í liðinu, Karen Ósk Þórisdóttir og Sigrún Agatha Árnadóttir náðu loks að brjóta niður vörn SA og koma pökknum framhjá Shawlee í markinu.

Berglind Huld lét sér ekki nægja að skora sitt fyrsta meistaraflokksmark heldur bætti hún við sínu öðru marki í leiknum og áttunda marki SA þegar skammt var til leiksloka.

SA - Fjölnir 8-1 (2-0, 4-0, 2-1)

Helstu tölur úr leiknum:

SA

Mörk/stoðsendingar: Sunna Björgvinsdóttir 2/2, Silvía Rán Björgvinsdóttir 2/1, Berglind Huld Ríkarðsdóttir 2/0, Guðrún Ásta Valentine 1/2, Sólrún Assa Arnardóttir 1/1, Kolbrún María Garðarsdóttir 0/2, Magdalena Sulova 0/2, Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir 0/1, Freyja Rán Sigurjónsdóttir 0/1.
Varin skot: 18 af 19 (94,74%).
Refsingar: 6 mínútur.

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar: Sigrún Agata Árnadóttir 1/0, Karen Þórisdóttir 0/1.
Varin skot: 39 af 47 (82,98%).
Refsingar: 6 mínútur.

Leikskýrsla 

Toppdeildin - staða

Næst:

  • Skautahöllin á Akureyri
    Laugardagur 21. nóvember kl. 16:45
    SA - SR

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00

Elrið og þjóðsögurnar

Sigurður Arnarson skrifar
28. október 2026 | kl. 15:30