Fara í efni
Pistlar

92 lið á Íslandsmóti í minnibolta 11 ára

Leikgleðin var í fyrirrúmi á Íslandsmótinu í minnibolta 11 ára á Akureyri. Myndin er úr viðureign Hauka og Keflavíkur en alls tóku 92 lið þátt í mótinu.

Helgina 15.-17. maí sl. hélt körfuknattleiksdeild Þórs glæsilegt og afar vel heppnað Íslandsmót í minnibolta 11 ára fyrir stúlkur og drengi. „Mótið var umfangsmikið í alla staði og tókst framkvæmd þess einstaklega vel, þar sem þátttakendur, starfsfólk og sjálfboðaliðar lögðu sitt af mörkum til að skapa eftirminnilega helgi fyrir unga iðkendur körfuknattleiks,“ segir í tilkynningu frá unglingaráði körfuknattleiksdeildar Þórs .

Alls tóku 92 lið tekið þátt í mótinu og samtals 340 leikir verið spilaðir. Keppt var á sjö völlum í fimm íþróttahúsum, sem undirstrikar umfang mótsins. Mótahald  og skipulag gekk afar vel og var stemningin bæði jákvæð og metnaðarfull frá upphafi til enda.

Glæsileg tilþrif - og flottir skór!

Lið Álftaness varð Íslandsmeistari í drengjaflokki og Haukar báru sigur úr býtum í stúlknaflokki. Í tilkynningunni segir að ástæða sé til að hrósa öllum þeim liðum sem tóku þátt í mótinu og leikmenn hafi sýnt mikinn metnað og góða framkomu bæði innan vallar sem utan. Ánægjulegt hafi verið að fylgjast með þeirri gleði, samheldni og keppnisanda sem einkenndi mótið og gerði það að jákvæðri upplifun fyrir alla sem komu að því.

Mikil og fórnfús vinna sjálfboðaliða

Framkvæmd móts af þessari stærðargráðu krefst mikillar vinnu og skipulags og í tilkynningunni kemur fram að körfuknattleiksdeild Þórs vill færa öllum þeim sem komu að mótinu innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag. Sérstakar þakkir fara til allra sjálfboðaliða sem sinntu fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal við sjoppurekstur, dómgæslu, ritaraborð, uppsetningu, frágang, þrif, bakstur og almenna framkvæmd mótsins.

„Án þess öfluga hóps fólks sem lagði fram tíma sinn, krafta og metnað hefði framkvæmd mótsins ekki verið möguleg. Samheldni, dugnaður og vilji samfélagsins til að leggja sitt af mörkum skapaði þá sterku umgjörð sem einkenndi mótið frá upphafi til enda.“

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15

Viðvíkurförin

Jóhann Árelíuz skrifar
24. maí 2026 | kl. 13:00

Hús dagsins: Lækjargata 22

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 06:00

Tré ölrakóngsins. Seinni hluti: Vist og notkun

Sigurður Arnarson skrifar
20. maí 2026 | kl. 09:00

Líkaminn geymir meira en við höldum

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
19. maí 2026 | kl. 09:00