Fara í efni
Pistlar

Fáðu innsýn í verkefni doktorsnema við HA

Á málþingi, sem haldið verður í Háskólanum á Akureyri næstkomandi þriðjudag fá gestir tækifæri til að kynnast fjölbreyttum rannsóknarverkefnum doktorsnema við skólann.
 
Doktorsnemarnir munu flytja stutt erindi um verkefni sín og veitt verður innsýn í doktorsnám og rannsóknarumhverfi háskólans.
 
Að kynningum loknum gefst gestum kostur á að taka þátt í opnu samtali við doktorsnemana, spyrja spurninga og ræða rannsóknir þeirra nánar.
 
„Doktorsnemar eru lykilþáttur í rannsóknastarfi Háskólans á Akureyri og mikilvægt að skapa vettvang þar sem rannsóknir þeirra verða sýnilegar,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri skólans við akureyri.net. „Með málstofunni viljum við opna samtalið og gefa fólki tækifæri til að kynnast þeirri þekkingarsköpun sem á sér stað innan háskólans.“
 
  • Málþingið verður í anddyrinu á Borgum, þriðjudaginn 3. mars frá kl. 9.00 til 10.30.
Doktorsnemarnir sem kynna verkefni sín:
 
  • Ashani Arulananthan
  • Kristrún María Björnsdóttir
  • Maria Finster Úlfarsson
  • María Dís Ólafsdóttir
  • Unnur Magnúsdóttir
Nánari upplýsingar um rannsóknarverkefni doktorsnemanna má finni hér: Nýjar raddir í vísindum

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30

Knappareynir

Sigurður Arnarson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00

Birki og beit

Sigurður Arnarson skrifar
08. apríl 2026 | kl. 08:00