Þorlákshafnarþór með tvo sigra á Akureyri
Þorlákshafnarþórsarar fóru glaðir heim eftir viðureignir sínar við Akureyrarþórsara í 1. deildum kvenna og karla í körfubolta í gær. Bæði Þorlákshafnarliðin hurfu á braut með sigra í farteskinu. Leikur kvennaliðanna var hnífjafn og spennandi, en sigur karlaliðs þeirra var öruggur.
Körfuboltavertíðin hjá Þórsliðunum hófst semsagt með tvíhöfða í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Fyrst mættust kvennalið þessara félaga.
Hnífjafnt og umdeildur dómur
Heimaliðið byrjaði leikinn mun betur komst í 11-2 í upphafi, en gestirnir hleyptu þeim ekki of langt frá sér. Akureyrarþórsarar höfðu forystuna lengst af fyrri hálfleiknum, en gestirnir náðu tveggja stiga forskoti í lokin. Seinni hálfleikurinn sveiflaðist nokkuð eftir slaka byrjun Akureyrarþórsara. Gestirnir náðu 12 stiga forskoti eftir nokkrar mínútur í þriðja leikhlutanum, en heimaliðið vann það til baka og komst yfir um miðjan fjórða leikhlutann.
Lokamínúturnar urðu æsispennandi og réðust úrslitin með tveimur vítaköstum eftir dóm sem heimaliðið var mjög ósátt við. Ksenija Kuzmanovic jafnaði fyrir Þór Akureyri í 80-80 þegar 14 sekúndur voru eftir á klukkunni. Gestirnir lögðu af stað í sókn og dæmt brot á leikmann heimaliðsins, en heimamenn vildu fá dæmdan ruðning á leikmann gestanna. Shawnteanna Tilman, langatkvæðamesta í Þorlákshafnarliðinu, fékk tvö vítaskot og nýtti þau. Sjö sekúndur voru eftir á klukkunni þegar heimaliðið fékk sína lokasókn, Nile Miller reyndi tveggja stiga skot til að knýja fram framlengingu, en það geigaði og sigurinn því gestanna.
Emma Karólína Snæbjarnardóttir var stigahæst heimakvenna með 27 stig. Nile Miller skoraði 22 stig og tók 16 fráköst.
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn (23-20) (16-21) 39-41 (19-19) (22-22) 80-82
Þór Ak.
Stig/fráköst/stoðsendingar: Emma Karólína Snæbjarnardóttir 27/7/3, Nile Miller 22/16/5, Ksenija Kuzmanovic 17/6/3, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 7/3/0, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 5/2/1, Kristný Halla Bragadóttir 2/2/1, Karen Lind Helgadóttir 0/4/2, Vaka Bergrún Jónsdóttir 0/1/0.
Þór Þ.
Shawnteanna Tillman 34/13/9, Antoaneta Axele 23/7/2, Jóhanna Ýr Ágústsdóttir 9/5/5, Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir 8/2/1, Jara Björg Gilbertsdóttir 6/6/2, Þóra Auðunsdóttir 0/1/0.
Ójafn leikur karlaliðanna
Það kom hins vegar hægt og bítandi í ljós að seinni leikur dagsins yrði líklega aldrei spennandi. Gestirnir úr Þorlákshöfn byrjuðu betur og höfðu góð tök á leiknum allt til enda. Munurinn var orðinn 13 stig eftir fyrsta leikhlutann og 18 stig að loknum fyrri hálfleiknum. Páll Nóel Hjálmarsson náði að skemmta áhorfendum með flautukörfu aftan við miðju í lok fyrri hálfleiksins. Gestirnir héldu áfram að auka muninn jafnt og þétt í seinni hálfleiknum og unnu að lokum 39 stiga sigur.
Þór úr Þorlákshöfn féll úr Bónusdeildinni í vor og kæmi ekki á óvart ef liðið ynni 1. deildina og færi beint upp aftur. Mögulega sterkasta lið deildarinnar með mikla reynslu innan sinna raða. Justin Andrew var stigahæstur Akureyringa með 24 stig og Pétur Cariglia næstur með 14 stig. Í gestaliðinu var Djordje Dzeletovic illviðráðanlegur, skoraði 32 stig og tók 15 fráköst.
Þór Akureyri - Þór Þorlákshöfn (19-32) (19-24) 38-56 (28-40) (16-25) 82-121
Þór Ak.
Justin Andrew 24/6/3, Pétur Cariglia 14/2/3, Jalen Green 10/5/1, Axel Arnarsson 8/5/3, Andri Már Jóhannesson 8/1/1, Páll Nóel Hjálmarsson 5/5/0, Arngrímur Friðrik Alfreðsson 5/0/1, Baldur Örn Jóhannesson 3/4/0, Daníel Davíðsson 0/3/0, Dagur Vilhelm Ragnarsson 0/1/1, Tryggvi Már Elínarson 0/1/1.
Þór Þ.
Djordje Dzeletovic 32/15/2, Joey Holifield 19/4/7, Jovan Sljivancanin 15/8/3, Halldór Garðar Hermannsson 15/3/3, Sigvaldi Eggertsson 12/9/7, Skarphéðinn Árni Þorbergsson 10/1/1, Davíð Arnar Ágústsson 9/1/3, Emil Karel Einarsson 4/7/0, Arnór Daði Sigurbergsson 3/1/0, Ísak Júlíus Perdue 2/0/1, Kolbeinn Óli Lárusson 0/1/1, Baldur Böðvar Torfasvon 0/0/1.
Nánasta fjölskylda birkis
Hús dagsins: Norðurgata 16
Að hverfa til einfaldleikans
Notkun og mikilvægi hafþyrnis