Fara í efni
Pistlar

KA-menn sækja Keflvíkinga heim í dag

Guðjón Ernir Hrafnkelsson og nokkrir Suðurnesjamenn í fyrri leik KA og Keflavíkur sem fram fór á Akureyri í lok apríl. Mynd: Ármann Hinrik.

KA sækir Keflvíkinga heim í 17. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í dag. 

Markalaust jafntefli við Þór í Akureyrarslagnum í Bestu deild karla færði liði KA eitt stig og sæti ofar í deildinni eftir 16. umferðina, en raunar má þó segja að stórt tap Stjörnunnar fyrir ÍA hafi einnig átt þátt í að þoka KA úr 10. sætinu upp í 9. sætið því KA og Stjarnan voru jöfn að stigum að loknum 16 umferðum, bæði með 15 stig úr 16 leikjum, en KA með hagstæðari markatölu. Það breyttist svo reyndar þegar 17. umferðin hófst því Stjarnan vann Val og færðist upp töfluna, en KA er aftur í 10. sætinu fyrir leik dagsins.

Baráttan í neðri hluta deildarinnar er gríðarlega hörð og spennandi því litlu munar á liðunum í 5. og 12. sætinu, aðeins sex stigum þegar fjórum leikjum af sex í 17. umferðinni er lokið. Valur, ÍA og Keflavík eru öll með 19 stig, en Keflavík með leik minna en hin tvö. Þá kemur Stjarnan með 18 stig og ÍBV 16, bæði að loknum 17 leikjum. KA er með 15 stig í 10. sætinu, að loknum 16 leikjum, og Þór sömuleiðis með 15 stig, en úr 17 leikjum, eftir sigurinn í gær. Markatala Þórs er mun slakari en KA. FH færðist niður í botnsætið í gær, situr þar með 13 stig, en á leik gegn KR inni í dag.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 17. umferð
    HS-orku völlurinn í Keflavík kl. 18
    Keflavík - KA

Keflvíkingar fengu á baukinn í síðustu umferð, töpuðu 5-1 fyrir Víkingum á útivelli. KA gerði markalaust jafntefli við Þór eins og áður sagði. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna í lok apríl, 2-1, á Akureyri.

Hús dagsins: Knarrarberg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
07. september 2026 | kl. 02:00

Jól á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
06. september 2026 | kl. 06:00

Einfaldir karlmenn

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
05. september 2026 | kl. 06:00

Nemendur teknir sturlungatökum

Orri Páll Ormarsson skrifar
04. september 2026 | kl. 15:30

Þvættingur

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
04. september 2026 | kl. 12:00

Hvenær teljast tré dauð? Lífið finnur sér leið

Sigurður Arnarson skrifar
02. september 2026 | kl. 09:20