Fara í efni
Pistlar

Drift EA: Sesselja framkvæmdastýra

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra frumkvöðla- og nýsköpunarfélagsins DRIFTAR EA. Mynd: Axel Þórhallsson/Samherji
Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastýra Driftar EA á Akureyri, félags sem hefur það að markmiði að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu. Stofnendur félagsins eru Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, tveir af stofnendum Samherja.
 

Sesselja Ingibjörg er með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, síðustu þrjú ár var hún framkvæmdastýra nýsköpunar- og orkuverkefnisins EIMS, segir í tilkynningu frá Samherja í morgun.

„Þá hefur hún undanfarin ár starfað með ýmsum fjárfestum, bæði sem frumkvöðull og fjárfestir. Undir hennar forystu var stofnuð grasrótarhreyfingin Norðanátt, sem er hreyfiafl nýsköpunar. Einnig hefur Sesselja Ingibjörg starfað sem ráðgjafi stjórnvalda varðandi nýsköpun.“

Sesselja Ingibjörg er með BA gráðu í lögfræði, sveinspróf í framreiðslu og hefur lokið MBA-námi í viðskiptum og stjórnun.

Samráð við innlenda og erlenda aðila á sviði nýsköpunar og fjárfestinga

Lögð verður áhersla á verkefni á sviði matvælaframleiðslu, heilbrigðis- og lækningavöruframleiðslu, líftækni, hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveg og grænna lausna, að því er fram kemur í tilkynningunni. Þar segir að við undirbúning stofnunar Driftar EA hafi verið haft samráð við innlenda og erlenda aðila á ýmsum sviðum nýsköpunar- og fjárfestinga.

Félagið verður með aðsetur í húsnæði fjárfestingafélagsins Kaldbaks ehf. við Ráðhústorg á Akureyri, gamla Landsbankahúsinu.

Skapandi tímar framundan

„Þeir Kristján og Þorsteinn Már hugsa augljóslega stórt með stofnun Driftar EA, eins og oft áður. Allur undirbúningur hefur verið afar metnaðarfullur og með samstarfi við sérhæfða innlenda og erlenda aðila aukast möguleikar á að starfsemin skili raunverulegum árangri í framtíðinni,“ segir Sesselja Ingibjörg.

„Með stofnun DRIFTAR EA er að hefjast ný sókn í atvinnumálum á Eyjafjarðarsvæðinu og táknrænt er að starfsemin verður í rótgrónum húsakynnum í hjarta Akureyrar, þar sem frumkvöðlar og fyrirtæki fá vel búna aðstöðu til að vinna hugmyndum sínum framgang innan og utan landsteinanna. Það eru því skapandi tímar framundan og ég hlakka til að vera hluti vel mannaðar áhafnar,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastýra Driftar EA.

Um þróun stafafuru

Sigurður Arnarson skrifar
24. apríl 2024 | kl. 09:15

Kanínuholan sem ekki er hægt að klípa sig frá

Rakel Hinriksdóttir skrifar
24. apríl 2024 | kl. 06:00

Heklupeysur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
22. apríl 2024 | kl. 11:00

Fiðrildahrif

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
21. apríl 2024 | kl. 11:00

Hvað hét kona Goebbels?

Orri Páll Ormarsson skrifar
19. apríl 2024 | kl. 06:00

Hús dagsins: Spítalavegur 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. apríl 2024 | kl. 08:00