Fara í efni
Pistlar

Karlar hjá Samherja fengu Mottumarssokka

Afhending Mottumarssokka um borð í Snæfelli EA 310. Fv.: Anna María Kristinsdóttir, Óli Hjálmar Ólason , Hafþór Máni Baldursson og Ásgeir Guðbjartur Pálsson. Myndir af vef Samherja.

Krabbameinsfélag Íslands tileinkar marsmánuði körlum með krabbamein í Mottumars, sem er árvekni- og fjáröflunarátak félagsins.

Í ár er lögð áhersla á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum hjá körlum en um leið aflar félagið fjár fyrir starfsemi félagsins, meðal annars með sölu Mottumarssokka. Á vef Samherja er greint frá því í morgun að allir karlar sem hjá starfa hjá fyrirtækinu hafi fengið afhenta slíka sokka.

Starfsemi Krabbameinsfélagsins byggir á sjálfsaflafé, stuðningur almennings og fyrirtækja er því grundvöllur þess að félagið geti haldið úti öflugri starfsemi, segir í tilkynningu á vef Samherja.

Karlmenn og krabbamein

Þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Samkvæmt tölfræðilegri samantekt frá árunum 2017 til 2022 greindust 937 karlar árlega með krabbamein og á sama tímabili létust 325 karlar árlega úr krabbameinum. Þótt miklar framfarir hafi átt sér stað í meðferð krabbameina á undanförnum árum og fimm ára lífshorfur hafi aukist verulega er staðreyndin sú að fjórðungur dánarmeina er af völdum krabbameina.

Afhending Mottumarssokka í ÚA: Fv. Sólveig Sigurjónsdóttir, Björgvin Árni Gunnarsson, Alger Capin, Andri Rósinberg Antonsson.

Hreyfing skiptir máli

Í fræðsluefni Krabbameinsfélagsins er undirstrikað að reglubundin hreyfing hafi ótvírætt gildi fyrir almenna heilsu og vellíðan. Rannsóknir hafi með afgerandi hætti sýnt fram á að hreyfing dragi úr líkum á ákveðnum krabbameinum og margvíslegum öðrum sjúkdómum.

Krabbamein snertir allar fjölskyldur fyrr eða síðar

Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri Samherja segir að félagið hafi í gegnum tíðina stutt Mottumars.

„Við erum afar þakklát Krabbameinsfélaginu fyrir þetta átak. Krabbamein er sjúkdómur sem snertir allar fjölskyldur fyrr eða síðar með einhverjum hætti. Þess vegna er mikilvægt að gera allt sem hægt er til að stemma stigu við sjúkdómnum, meðal annars með Mottumars. Þetta metnaðarfulla árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er kærkomið tækifæri til að taka höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein,“ segir Anna María Kristinsdóttir á vef Samherja

Birkir Freyr Elvarsson í ÚA kátur með Mottumarssokka.

Um þróun stafafuru

Sigurður Arnarson skrifar
24. apríl 2024 | kl. 09:15

Kanínuholan sem ekki er hægt að klípa sig frá

Rakel Hinriksdóttir skrifar
24. apríl 2024 | kl. 06:00

Heklupeysur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
22. apríl 2024 | kl. 11:00

Fiðrildahrif

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
21. apríl 2024 | kl. 11:00

Hvað hét kona Goebbels?

Orri Páll Ormarsson skrifar
19. apríl 2024 | kl. 06:00

Hús dagsins: Spítalavegur 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. apríl 2024 | kl. 08:00