Fara í efni
Pistlar

Skrúfan máluð til að draga úr olíunotkun

Myndir af vef Samherja.

Lokið er við að mála Kaldbak EA 1, ísfisktogara Samherja, í Slippnum á Akureyri í vikunni, en sérstaka athygli vekur að skrúfa skipsins var máluð með hágæða botnmálningu, sem ætlað er að draga úr olíunotkun. Þetta kemur fram á vef Samherja. Þar segir að skrúfan á Björgu EA hafi einnig verið máluð fyrir nokkru síðan með sömu málningu.

„Yfirleitt eru skrúfur skipa ekki málaðar en tilraunir með það hafa verið gerðar á undanförnum árum. Málningin hindrar að gróður festist á skrúfunni, sem eykur viðnám hennar í sjónum og þar með olíunotkun. Það er vissulega erfitt að mæla árangurinn nákvæmlega en við höfum trú á að þessi hágæða málning komi til með að skila tilætluðum árangri,“ segir Sigurður Rögnvaldsson, verkefnastjóri hjá útgerðarsviði Samherja.

Skrúfan á Kaldbak EA 1 nýmáluð. Málningin á að draga úr olíunotkun.

Auk þess að mála skipið var unnið að ‎ýmsum fyrirbyggjandi endurbótum. Fram kemur á vef Samherja að ekki sé langt síðan lokið var við svipaðar endurbætur á systurskipum Kaldbaks, Björgu EA 7 og Björgúlfi EA 312.

Sigurður segir að verkið hafi tekið um fjórar vikur og allar tímaáætlanir hafi staðist. Auk starfsfólks Slippsins komu nokkrir verktakar að endurbótunum. Hann segir mikilvægt að allur undirbúningur slíkra verkefna sé vandaður.

„Skrokkur skipsins var málaður, einnig millidekk og lestarrými. Kaldbakur er sjö ára gamalt skip og þess vegna þótti skynsamlegt að ráðast í nokkrar endurbætur, svo sem upptekt á aðalvél og lagfæringar á stýrisbúnaði. Þessi systurskip hafa reynst afskaplega vel í alla staði en með tímanum þarf auðvitað að huga að fyrirbyggjandi endurbótum og þeim er nú lokið. Við getum hiklaust sagt að skipin séu í topp standi, þökk sé útgerð og áhöfnum skipanna.“

Um þróun stafafuru

Sigurður Arnarson skrifar
24. apríl 2024 | kl. 09:15

Kanínuholan sem ekki er hægt að klípa sig frá

Rakel Hinriksdóttir skrifar
24. apríl 2024 | kl. 06:00

Heklupeysur

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
22. apríl 2024 | kl. 11:00

Fiðrildahrif

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
21. apríl 2024 | kl. 11:00

Hvað hét kona Goebbels?

Orri Páll Ormarsson skrifar
19. apríl 2024 | kl. 06:00

Hús dagsins: Spítalavegur 9

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. apríl 2024 | kl. 08:00