Byrja að bólusetja börn í næstu viku

Stefnt er að því að hefja bólusetningar akureyrskra barna, 5 til 11 ára, við Covid-19 um miðja næstu viku. Horfið hefur verið frá því að bólusetja í skólum, eins og til stóð, en þess í stað ákveðið að nýta áfram aðstöðu á slökkvistöðinni þar sem bólusett hefur verið til þessa og reynst vel, skv. upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN).
Byrjað verður á að bólusetja grunnskólabörn og í framhaldi af því verða leikskólabörn bólusett. Tekið er fram í tilkynningu að bólusetning sé alltaf val.
Allir sem að verkefninu koma eru nú að undirbúa framkvæmd bólusetninganna til að allt gangi eins vel og hægt er. Lögð er áhersla á öryggi, trúnað og að upplifun barnanna verði góð,“ segir í tilkynningu frá HSN.
„Heilsugæslan skipuleggur fyrirkomulag bólusetninganna og eru skólahjúkrunarfræðingar þar í lykilhlutverki. Læknir og sjúkraflutningamenn verða líka á bólusetningastað.“
Fyrirkomulagið
Foreldrar sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að skrá barn sitt í bólusetninguna. Hlekkur á skráningarsíðu er væntanlegur, og mun Akureyri.net koma því á framfæri þegar hlekkurinn verður tilbúinn.
Þar verður hægt að:
- skrá barn sitt í bólusetningu
- skrá aðra sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
- hafna/bíða með bólusetningu
„Þegar barn hefur verið skráð í bólusetningu er sent strikamerki með SMS skilaboðum. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef það vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Það að sýna strikamerki á bólusetningastað er því ígildi samþykkis.
Forsjáraðilar barna á þessum aldri sem ekki nota Heilsuveru munu geta skráð barn sitt í bólusetningu á bolusetning.covid.is – hlekkurinn er ekki tilbúinn en verður það fljótlega.“


Eldhúsdagsumræður

Lýsið frá Tona og Jónda

„Við erum einu skrefi frá því að sagan endurtaki sig“

„Ég yfirgaf ekki Rússland, Rússland yfirgaf mig“
