Næstu daga verður mikil umferð í bænum, sérstaklega í kringum íþróttasvæði Þórs og KA. Akureyrarbær hefur brugðið á það ráð að nýta götur við íþróttasvæðin að hluta undir bílastæði. Akureyrarbær minnir jafnframt á að frítt er í strætó í bænum.
- N1 mót KA hefst á morgun, miðvikudag. Vegna mótsins verður spotta af Þingvallastræti breytt í bílastæði og aðeins ein akrein opin í hvora átt, eins og sjá má á myndinni sem fylgir. Þetta á við á milli Mýrarvegar og gönguljósanna við Hrísalund og gildir frá miðvikudegi fram á laugardag, 1.-4. júlí.

- Pollamót Þórs verður á Þórssvæðinu á föstudag og laugardag. Þessa tvo daga verður einstefna niður Skarðshlíðina, frá Smárahlíð að Litluhlíð og önnur akrein götunnar notuð undir bílastæði á þessum spotta, eins og sýnt er á myndinni.
