Fara í efni
Pistlar

Baldvin á EM: 13. sæti og Íslandsmet í 10 km

Baldvin Þór Magnússon í viðtali við RÚV eftir hlaupið í Birmingham í kvöld. Skjáskot vef RÚV.

Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar varð í 13. sæti í 10.000 metra hlaupi á nýju Íslandsmeti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi í kvöld, laugardagskvöld. Baldvin hljóp á 28 mínútum, 25,67 sekúndum og aðeins munaði sjónarmun á honum og þeim sem varð í 12. sæti. Baldvin hafði áður best hlaupið á 28 mín. 57,17 sek., árið 2023, en Íslandsmet Hlyns Andréssonar frá 2021 var 28:36,80 mín. Það setti hann einnig á vellinum í Birmingham.

Baldvin segir í samtali við RÚV að hlaupið hafi þróast eins og hann bjóst við. Hann segist ekki hafa náð að undirbúa sig eins mikið og hann vildi vegna meiðsla á kálfa en þó nóg til að keppa.

Svíinn Andreas Almgren varð Evrópumeistari. Hann kom langfyrstur í mark á 27:23,44 mínútum og setti Evrópumeistaramótsmet. Keppendur í 10 km hlaupinu voru 25.

„Ég er bara mjög sáttur við þetta. Þetta var svona nálægt því að mjög, mjög gott. Það var skrýtin upplifun að vera í svona taktísku 10 þúsund metra hlaupi,“ sagði Baldvin við RÚV eftir hlaupið. „Það voru klárlega tímapunktar sem við vorum að fara allt of hratt. Ég vissi að það var enginn að fara að halda þessu allan tímann. Maður þurfti bara að hanga í því, vitandi að einhvern tímann myndi hægja á hraðanum. Ég bjóst ekki við að það myndi hægjast svona mikið á. Við vorum næstum byrjaðir að labba þegar það voru svona þrír kílómetrar eftir. Svo vorum við hringaðir af Almgren þegar við vorum farnir að labba. Þá byrjuðum við aftur að keppa,“ sagði Baldvin.

Smellið hér – eða á myndina fyrir neðan – til að sjá viðtalið við RÚV og neðar á síðunni má sjá glæsilegan endasprett hans og skemmtilega lýsingu Sigurbjörns Árna Arngrímssonar.

Það er aldrei of seint að hreyfast betur

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
25. ágúst 2026 | kl. 06:00

Fjandafæla, sokkapör og rósakrans

Jóhann Árelíuz skrifar
23. ágúst 2026 | kl. 06:00

Við elskum þessar mellur

Stefán Þór Sæmundsson skrifar
22. ágúst 2026 | kl. 06:00

„Lucy, hún er löngu dauð!“

Orri Páll Ormarsson skrifar
21. ágúst 2026 | kl. 14:00

Hin hollu ber hafþyrnis

Sigurður Arnarson skrifar
19. ágúst 2026 | kl. 10:20

Hús dagsins: Háagerði/Syðri-Tjarnir

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
18. ágúst 2026 | kl. 09:30