Fara í efni
Pistlar

Útí dokk

EYRARPÚKINN - 47

Það er gaman að koma heim með þorsk í kippu eða rauðmaga með gulri lifur.

Lognbjarta daga lygnir sólin sjónum í dokkinni en trillur hvíla í festum hálfmánum líkar og maður flatmagar á bryggjunni og skyggnir seiði undir yfirborði.

Gaman að spá í hvað kallarnir koma með fyrir grjótgarðinn en rottur skjótast undan skúrum og grýtum við þær og máfana.

Stundum fær maður hákarl eða rikkling og kraftur í köllum þegar flaskan hefst á loft og bregða bússur stundum bátsverjum í túni.

Brún lykt af þangi og sjórinn eins blár og bókarkápa Sigurðar frá Balaskarði.

Jóhann Árelíuz er rithöfundur og skáld.

  • Útí dokk er kafli úr Eyrarpúkanum, gáskafullu skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Bókin kom út 2003.

Hús dagsins: Hríseyjargata 6

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
28. október 2026 | kl. 01:30

Hús dagsins: Norðurgata 33

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
25. október 2026 | kl. 21:00

Beitarkóngur á Borgum

Jóhann Árelíuz skrifar
25. október 2026 | kl. 06:00

Ber í skógi

Sigurður Arnarson skrifar
21. október 2026 | kl. 12:00

Nokkur ráð til að líða betur í skammdeginu

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
20. október 2026 | kl. 12:00

Skáldkonan á Ljósavatni

Jóhann Árelíuz skrifar
18. október 2026 | kl. 10:00