Treystum kennurum
Björn Valur Gíslason skrifaði skoðanagrein sem birtist 20. apríl undir því nafni „Hver stendur með kennurum - ef einhver?“ Svarið er að VG stendur með kennurum.
Það vakti sérstaka athygli mína þegar menntamálaráðherra sagði í viðtali í Kastljósi að hún væri eingöngu í liði með börnum en ekki kennurum. Með þessum orðum virðist menntamálaráðherra stilla kennarastéttinni upp sem hindrun í vegi velgengni barna í námi. Slíkt viðhorf ráðherra gefur samfélaginu ákveðið skotleyfi á kennarastéttina. Það er bæði ósanngjarnt og skaðlegt.
Kennarar eru ein mikilvægasta starfsstétt samfélagsins. Þeir móta framtíðina á hverjum degi með því að fræða börnin okkar, efla sjálfstraust þeirra og kenna þeim að taka þátt í lýðræðissamfélagi. Þrátt fyrir það er ítrekað talað niður til kennara, eins og ábyrgðin á öllum áskorunum skólakerfisins hvíli aðeins á herðum þeirra. Kennarar eiga að geta treyst því að stjórnvöld standi með þeim, hlusti á reynslu þeirra og vinni með þeim að lausnum. Þegar stuðninginn vantar veikist skólakerfið allt.
Ábyrgðin liggur þó ekki aðeins hjá kennurum og stjórnvöldum. Foreldrar þurfa einnig að vera virkir þátttakendur í námi barna sinna. Þegar heimili og skóli vinna saman skapast grundvöllur fyrir árangur, vellíðan og ábyrgð. Börn þurfa að finna að fullorðna fólkið í kringum þau tali saman og styðji hvert annað. Þegar börn finna fyrir því að talað sé af virðingu um skólann þeirra og kennara er líklegra að þau beri virðingu fyrir kennaranum sínum og náminu.
Rannsóknir benda til þess að kennarastarfið hafi misst virðingu frá samfélaginu þegar það þróaðist úr því að vera „karlastétt“ yfir í að vera „kvennastétt“. Það er þróun sem er löngu er tímabært að leiðrétta. Við sem samfélag þurfum að ákveða að treysta því góða fólki sem hefur menntað sig í mörg ár til þess að sinna þessu mikilvæga starfi. Að vera með börnum okkar stóran hluta af þeirra vökutíma og hjálpa þeim að þroskast og bæta við sig þekkingu. Við verðum að hlusta á kennarana okkar á öllum skólastigum. Þeir sem vinna „á gólfinu“ vita hvað gengur og hvað gengur ekki.
Við eigum að hætta að leita að sökudólgum og byrja að byggja upp traust. Kennarar eiga skilið virðingu, stuðning og samstarf, ekki sífellda neikvæða gagnrýni. Það er fjárfesting í framtíðinni og hluti af samfélagslegri ábyrgð okkar að standa með kennurum.
Stefán Oddur Hrafnsson er faðir, kennaranemi, og situr í öðru sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri
Í skólanum er skemmtilegt að vera – eða hvað?
Gerum það sem virkar gegn ofbeldi
Velferðarmálin á Akureyri – Setjum börnin í forgang
Spurt er: Er hægt að gera meira fyrir atvinnulífið?