Fara í efni
Pistlar

Hið næstum heimsfræga hjóltré

TRÉ VIKUNNAR - 190

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Við vitum að þið, lesendur góðir, eruð almennt vel að ykkur um hin aðskiljanlegustu efni. Þess vegna gerum við ráð fyrir að þið hafið heyrt eða lesið um hjól tímans, lukkuhjól, hjólbarða og fleira í þeim dúr. Samt ekki ánægð hjól. Bara reiðhjól. En fáir hafa heyrt um hjóltré.

Hvað veldur því að tré fær svona einkennilegt nafn?

Er auðvelt að sveigja við hjóltrjáa þannig að heppilegt sé að smíða úr þeim hjól? Vaxa þau í hring þannig að lag stofnsins minni á hjól? Var fyrsta reiðhjól heimsins smíðað úr svona tré? Getur þetta nafn vísað í eitthvað sem gerir tegundina næstum því heimsfræga? Eða er ástæða þessa nafns einhver allt önnur og ómerkilegri?

Hjóltré hefur einkennilega frumstæðar leiðir til vatnsflutninga. Það flytur vatn um tréð á annan hátt en aðrir dulfrævingar. Getur verið að tegundin sé einhvers konar millistig á milli dulfrævinga (eins og lauftrjáa) og berfrævinga (eins og barrtrjáa)? Þessir vatnsflutningar hafa haldið vöku fyrir grasafræðingum í um eina og hálfa öld. Geta þeir gert þetta tré heimsfrægt? Er þetta tré tákn fyrir hjól tímans?

Í þessum pistli segjum við frá þessari tegund, Trochodendron aralioides Sieb. & Zucc., sem kallast hjóltré á nær öllum tungumálum. Það hefur verið til á jörðinni í um áttatíu milljónir ára og hefur gert tvær atlögur að heimsfrægð. Því miður hefur heimsfrægðin látið bíða eftir sér. Hún virðist ekki hjóla í þetta tré. Í þessum pistli skoðum við hjóltré og notum það sem dæmi um hvernig tré og annar gróður getur brugðist við loftslagsbreytingum. Einnig segjum við stuttlega frá muninum á dulfrævingum (Angiospermae) og berfrævingum (Gymnospermae).

 
Blómstrandi hjóltré. Mynd af síðunni Trees and Shrubs Online. Þetta tré vex í Windcliff, Indianola í Washington. Myndina tók John Grimshaw í júní 2023.
Blómstrandi hjóltré. Mynd af síðunni Trees and Shrubs Online. Þetta tré vex í Windcliff, Indianola í Washington. Myndina tók John Grimshaw í júní 2023.

Lýsing

Hjóltré er stór, sígrænn runni eða tré sem við bestu aðstæður getur náð allt að 20 til 25 metra hæð (Bronckaers 2022). Algengara er þó að tréð myndi stóra runna (Clapp & Crowson 2026) og sumar heimildir segja að hjóltré verði varla hærra en um 16 metrar (Berry 2026). Tegundin hefur tilhneigingu til að mynda marga stofna en í ræktun eru hjóltré gjarnan klippt þannig að til verða einstofna tré. Það er alveg óþekkt að stofnarnir vaxi í hringi sem líkja megi við hjól. Tréð er ekki þannig vaxið að auðvelt sé að beygja stofnana og mynda úr þeim hjól. Stofninn er ekkert sérstaklega sterkur og satt best að segja alveg ómögulegur í tréhjól. Ástæðan fyrir nafninu er önnur og veldur ekki heimsfrægð.

 
Tvær myndir sem Tom Christian tók á Bretlandseyjum og við fengum héðan. Sú fyrri er tekin í The Valley Gardens, Windsor Great Park utan við London en sú seinni í Arduaine, Argyll í vesturhluta Skotlands.
Tvær myndir sem Tom Christian tók á Bretlandseyjum og við fengum héðan. Sú fyrri er tekin í The Valley Gardens, Windsor Great Park utan við London en sú seinni í Arduaine, Argyll í vesturhluta Skotlands.
 

Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Hið næstum heimsfræga hjóltré

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00

Djúpslökun og töfrar Jóga Nidra

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 06:00

Afi og amma á Hraunfelli

Jóhann Árelíuz skrifar
01. nóvember 2026 | kl. 06:00