Fara í efni
Umræðan

Gleymum við stundum litlu fyrirtækjunum?

Akureyri er öflugur þjónustukjarni fyrir allt Norðurland. Í bænum starfa fjölmörg lítil og meðalstór fyrirtæki, meðal annars á sviði þjónustu og verslunar, og brýnt er að styðja við rekstrarumhverfi þeirra, enda fá þau ekki alltaf sanngjarnt vægi í umræðu um atvinnumál.

Hér eru nokkur atriði sem ég tel nauðsynlegt að Akureyrarbær tryggi þeim til handa:

  • Atvinnulóðir og húsnæði: Tryggjum á hverjum tíma fjölbreytt framboð atvinnulóða og gera ráð fyrir húsnæði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í allri uppbyggingu, á þéttingareitum, í nýjum hverfum og á atvinnusvæðum.
  • Stöðugleiki í efnahagsmálum: Tökum virkan þátt í sameiginlegri vegferð hins opinbera til að vinna gegn verðbólgu og háum vöxtum.
  • Orkuöryggi og flutningskerfi: Styrkjum flutningskerfið með Blöndulínu 3 til að draga úr flökti sem getur bitnað sérstaklega á minni fyrirtækjum sem eru síður varin fyrir áhættu.
  • Ferðamennska og aðdráttarafl bæjarins: Byggjum upp Akureyri sem eftirsóknarverðan áfangastað og tengjum það sérstaklega við lýðheilsutengda ferðamennsku, menningu og tækifæri sem felast í millilandaflugi og komu skemmtiferðaskipa.
  • Sterkari miðbær: Eflum miðbæinn enn frekar með uppgerð gatna og opinna svæða og gerum hann aðlaðandi fyrir íbúa, gesti og atvinnustarfsemi.
  • Aðgengi og bílastæði: Fækkum ekki frekar bílastæðum í kringum atvinnustarfsemi. Ráðumst meðal annars í heildarúttekt á bílastæðamálum í miðbænum með það að markmiði að bæta aðgengi og styðja við verslun og þjónustu.
  • Geymslurými fyrir fyrirtæki: Setjum á fót öruggt geymslusvæði þar sem fyrirtæki geta leigt rými fyrir tæki og tól.
  • Innviðir og hagsmunagæsla: Stundum virka hagsmunagæslu um innviðauppbyggingu á Akureyri og í nágrenni til að styrkja fjölbreytt atvinnulíf og samkeppnishæfni fyrirtækja.
  • Fasteignaskattar og sanngirni: Skatttekjur sveitarfélaga hafa aukist verulega á síðustu árum í gegnum útsvar, að stórum hluta vegna mikilla launahækkana, og því ekki nema sanngjarnt að fyrirtæki njóti þess á móti með lækkun fasteignaskatta.
  • Húsnæðismál starfsfólk: Tryggjum nægt framboð íbúðarhúsnæðis og verum jákvæð fyrir uppbyggingu á viðunandi húsnæði fyrir starfsfólk, þar með talið lausnir til skemmri tíma.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir er oddviti Framsóknar á Akureyri

Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 21:30

Hvernig verður Akureyri svæðisborg?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 06:00

Verður Hólaskóli lagður niður og Hólastaður seldur?

Jón Bjarnason skrifar
03. febrúar 2026 | kl. 06:00

Framboð sem byggir á trú á Akureyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
01. febrúar 2026 | kl. 11:30

„Akureyrar ákvæðið“ um lagningu raflína í þéttbýli

Karl Ingólfsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 16:30

Hreint ekki eins og atvinnuviðtal

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
26. janúar 2026 | kl. 13:00