Fara í efni
Pistlar

Erfðafræði birkis

TRÉ VIKUNNAR - 191

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Við erum það sem við erum vegna þess hvernig umhverfið mótar okkur og hvaða gen við erfðum frá foreldrum okkar. Þannig er það hjá öllum fjölfruma lífverum og þar með talið hjá trjánum. Í kjarna frumna er þráðlaga frumulíffæri sem kallast litningar (krómósóm). Þeir koma í ljós við frumuskiptingu og eru gerðir úr prótínum og kjarnsýru sem kallast deoxyribonucleic acid og við þekkjum sem DNA. Í sumum eldri bókum er það íslenskað og kallað DKS sem stendur fyrir deoxýríbósakjarnsýra. Í þessu frumulíffæri er erfðaefnið geymt. Í því eru upplýsingar um allt sem þarf til að búa til lífveru og halda henni gangandi. Með nokkurri einföldun má kalla þessa upplýsingageymslu gen.

Beint og fallegt ilmbirki, Betula pubescens, vex upp úr garðamaríustakk, Alchemilla mollis, á umferðareyju á Akureyri. Mynd: Sig.A.
Beint og fallegt ilmbirki, Betula pubescens, vex upp úr garðamaríustakk, Alchemilla mollis, á umferðareyju á Akureyri. Mynd: Sig.A.

Með örfáum undantekningum eru 46 litningarnir í kjarna hverrar mannsfrumu sem geymdir eru í 23 pörum. Í báðum foreldrum okkar urðu til kynfrumur með svokallaðri rýriskiptingu. Kynfrumur hafa 23 litninga ef allt er eðlilegt á meðan aðrar frumur, sem verða til við jafnskiptingu, hafa 23 pör litninga. Þarna liggur munurinn á rýriskiptingu og jafnskiptingu. Við getnað renna kynfrumurnar saman þannig að þessir 46 litningar sameinast í 23 litningapör. Við það verður til okfruma þar sem helmingur litninganna er frá líffræðilegum föður og hinn helmingurinn frá líffræðilegri móður. Í megindráttum má segja að svona sé þetta hjá öllum fjölfruma, tvílitna lífverum en litningarnir og þar með litningapörin eru misjafnlega mörg eftir tegundum lífvera. Við skutum þarna inn orðinu tvílitna. Við erum tvílitna og það merkir að við, líkt og önnur spendýr, erum með tvö pör litninga í kjarna hverrar einustu kjarnafrumu líkamans sem orðið hefur til við jafnskiptingu.

Sauðfé á beit í birkikjarri sem ber merki þess að vera með mikið erfðaefni fjalldrapa í erfðamengi sínu. Mynd: Sig.A.
Sauðfé á beit í birkikjarri sem ber merki þess að vera með mikið erfðaefni fjalldrapa í erfðamengi sínu. Mynd: Sig.A.

Þegar horft er til litninga má segja að eitt mikilvægt atriði hafi þróast á annan hátt hjá mörgum plöntum en hjá dýrategundinni sem af meðfæddu lítillæti kallar sig vitiborna. Spendýr, eins og maðurinn, eru alltaf tvílitna. Það er alls ekki þannig hjá öllum plöntum. Þær geta verið fjöllitna. Það merkir að pörin í hverju sæti eru fleiri en tvö. Hjá tvílitna tegundum getur fjöldi para verið hvort heldur sem er slétt tala eða oddatala en þar sem ekki er hægt að skipta oddatölum jafnt er fjöldi litningaparanna alltaf táknaður með sléttri tölu í fjöllitna tegundum nema í blendingstegundum. Hjá þeim geta litningar orðið út undan við æxlun og eiga ekki möguleika á að parast við aðra litninga. Það getur leitt til erfðagalla eða ófrjósemi.

Birki á Eiðsvelli er ilmbirki, Betula pubescens, með slútandi greinar. Hugsanlega bendir það til erfðaflæðis frá hengibirki, B. pendula. Mynd: Sig.A.

Birki á Eiðsvelli er ilmbirki, Betula pubescens, með slútandi greinar. Hugsanlega bendir það til erfðaflæðis frá hengibirki, B. pendula. Mynd: Sig.A. 

 

Í þessum pistli skoðum við litningana hjá birkiættkvíslinni, Betula, og tökum hana sem dæmi um hvernig þetta getur verið hjá trjám og öðrum plöntum. Birkið hefur grunnlitningatöluna fjórtán en til eru bæði tvílitna tegundir sem hafa 28 litninga og fjöllitna tegundir. Þær hafa allar fjölda litninga sem eru margfeldi af grunnlitningatölunni fjórtán. Þetta er hluti af pistlaröð um birki sem við birtum smám saman.

 

Efnileg ilmbjörk, Betula pubescens, í Krossanesborgum við Akureyri. Þetta birki er ferlitna tegund (tetraploid) og hefur 56 litninga í hverri frumu. Myndir: Sig.A.

Af hverju birki?

Þegar genarannsóknir á dýrum hófust skipti bananaflugan eða ávaxtaflugan, Drosophila melanogaster, miklu máli. Hún hefur fáa litninga, kynslóðabilið er stutt og hver fluga eignast mörg afkvæmi. Hún hentar því mjög vel til að veita grundvöll til að skilja erfðafræði. Þetta draumadýr erfðafræðinga gæti vel verið mest rannsakaða lífvera í heimi, þökk sé þrotlausri vinnu þolinmóðra erfðafræðinga í áratugi. Ætla má að um það bil tugur fræðinga hafi engið Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á þessu 2,5 mm langa dýri. Þeir geta þakkað það þessari þolinmæði sinni.


Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Erfðafræði birkis

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Birkið í Trjáræktarstöðinni afhjúpað – Haustið kjaftar frá

Helgi Þórsson skrifar
04. nóvember 2026 | kl. 10:00