Fara í efni
Pistlar

Elsku vinur minn, Arnar

Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hann var 10 ára, hann sat þá til borðs með mér og júdókrökkunum þegar verið var að afhenda árlegar viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla. Frændi hans hafði orðið Íslandsmeistari en ekki komist svo ég bað hann um að taka við verðlaunum fyrir hönd frænda síns. Það gerði hann og endaði á mynd í bæjarblaðinu sem einn af þeim sem höfðu orðið Íslandsmeistarar í júdó. Hann fékk að heyra það reglulega frá mér næstu rúmlega þrjátíu árin að þetta hefði verið hápunkturinn á ferli hans.

Árin liðu og hann fullorðnaðist. Leiðir okkar lágu næst saman í ræktinni þegar hann varð einn af fastagestum í spinning tímum hjá mér. Af og til laumaði ég með þungarokki af klassísku gerðinni honum til mikillar gleði. Við spjölluðum oft í ræktinni og með tímanum urðum við góðir vinir. Hann var eldklár, sjálfstæður og óhræddur við að gagnrýna það sem honum fannst miður.

Þegar ég flutti út til Svíþjóðar fyrir átta árum síðan var ég ekki í góðu jafnvægi. Alvarlegt þunglyndi þjáði mig með öllum þeim myrku hugsunum sem því fylgir. Ég ræddi það ekki við nokkurn mann, en á einhvern undarlegan hátt skynjaði hann það. Það fór svo að við spjölluðum oft saman þó svo að við værum alltaf í sitthvoru landinu, ég í Svíþjóð en hann ýmist á Íslandi, í Þýskalandi eða í Færeyjum. Það voru góð samtöl. Hægt og rólega fór hann að opna á líðan sína, honum leið ekki vel og hafði sennilega aldrei gert það.

En hann hafði byggt í kringum sig múr sem hann hleypti engum inn fyrir, ég benti honum oft á þetta og hann samsinnti því en sagðist ekki þora eða vita hvernig hann ætti að brjóta þennan múr niður. Hann hafði lagt allt sem hann hafði að gefa í að þjálfa aðra og hjálpa þeim, hann skildi ekkert eftir fyrir sig sjálfan.

Við áttum það sameiginlegt að vinna með þeim sem við þjálfuðum skipti okkur öllu. Þegar maður er þannig brennur maður svo mikið fyrir starfið að samskipti við annað fólk verða oft sérstök vegna þess að það fólk sér ansi oft ekki hlutina í sama ljósi. Þá þykir maður erfiður og er það, en þeir sem eru á hliðarlínunni geta aldrei séð sömu heildarmyndina og sá sem þjálfar. Það skilur fólkið á hliðarlínunni sjaldnast og þá verða árekstrar. Vinur minn var eins og ég, hafði ekkert umburðarlyndi gagnvart þessu fólki.

En íþróttapólitík á Íslandi er grimmileg og fólk hikar ekki við að reka hnífinn í bakið á jafnvel samherjum. Bakið á vini mínum var sundurstungið.

Fyrir fjórum árum var ég langt niðri en eins og alltaf sagði ég engum frá því. Vinur minn skynjaði það og sendi mér myndband af viðtali við mann sem lifði af sjálfsmorðstilraun. Maðurinn hafði stokkið fram af hárri brú. Hann sagði að um leið og hann hefði sleppt takinu hefði hann séð eftir stökkinu. Vinur minn sagði að það væru til fjöldinn allur af svona frásögnum og þetta væri aldrei svarið. Svona var þessi vinur minn, hann skynjaði vanlíðan mína og kom þá hreint og beint fram, ekkert farið í kringum hlutina. Hann gerði mér fyllilega ljóst að væri ég í svona hugleiðingum þá væri það rangt af mér.

Fyrir nokkrum vikum hafði hann samband við mig og sagðist vera mjög langt niðri eftir enn eina hnífstunguna í bakið. Við spjölluðum lengi. Ég hafði oft hvatt hann til að fara til sálfræðings til að reyna að brjóta niður múrinn og hann hafði reynt það, en núna sagði ég honum að hann yrði að gera það. Nokkrum dögum seinna heyrði ég í honum og þá hafði hann spjallað tvisvar við sálfræðing og sagði það hafa gengið vel. Daginn eftir sendi hann mér skilaboð og spurði hvort hann gæti hringt í mig. Ég sá ekki þau skilaboð. Svo hvarf hann.

Elsku vinur minn Arnar Gunnarsson, ég sakna þín ákaflega.

Jón Óðinn Waage er leiðbeinandi barna með hegðunarvandamál og fyrrverandi júdóþjálfari.

Skógarjaðrar

Sigurður Arnarson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:30

Svona bara af því bara

Sigurður Ingólfsson skrifar
27. mars 2024 | kl. 10:02

Fannfergi

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
25. mars 2024 | kl. 11:30

Hús dagsins: Spítalavegur 15

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
24. mars 2024 | kl. 19:00

Gleðispillirinn og neyslunöldrarinn kveður sér hljóðs

Rakel Hinriksdóttir skrifar
23. mars 2024 | kl. 06:00

Eins gott að þú baðst ekki um bjúgu!

Orri Páll Ormarsson skrifar
22. mars 2024 | kl. 10:30