Fara í efni
Pistlar

Deildir og hlyntegundir heimsins

TRÉ VIKUNNAR - 192

Pistill í röðinni Tré vikunnar birtist vikulega á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga, alla miðvikudaga. Akureyri.net birtir brot úr hverjum pistli til að vekja athygli á skrifunum og hvetur fólk til að lesa meira á vefsíðu félagsins.
_ _ _

Í pistli okkar um ættkvísl hlyna, Acer, sögðum við frá því að mjög margar og mismunandi tegundir eru til innan ættkvíslarinnar. Því miður eru fræðimenn ekki á einu máli um fjöldann eins og þar kom fram. Í þessum pistli ætlum við að segja aðeins meira frá þessum tegundum og vonandi verðum við ekki átakanlega glapyrt en lítil reynsla er af mörgum tegundum ættkvíslarinnar hér á landi. Eins og vænta má með svo stóra og fjölbreytta ættkvísl eru tegundir innan hennar misjafnlega skyldar innbyrðis. Því hefur ættkvíslinni verið skipt upp í fjölmargar deildir eftir einkennum og skyldleika. Það flögrar ekki að okkur að segja frá öllum tegundunum en við getum sagt nánar frá helstu deildum ættkvíslarinnar og helstu tegundum innan hverrar deildar.

Horft upp í krónu á spjaldhlyn, Acer davidii, í Konunglega grasagarðinum í Edinborg árið 2019. Laufin eru ekki dæmigerð fyrir ættkvíslina en fræin eru það. Mynd: Sig.A.
Horft upp í krónu á spjaldhlyn, Acer davidii, í Konunglega grasagarðinum í Edinborg árið 2019. Laufin eru ekki dæmigerð fyrir ættkvíslina en fræin eru það. Mynd: Sig.A.

Deildir

Krosssaumur þróunarinnar gerir það að verkum að tegundir í hverri deild (enska: Section, latína: Sectio) eiga sitthvað sameiginlegt sem ekki er endilega að finna hjá öðrum tegundum ættkvíslarinnar. Deildirnar eru misjafnlega stórar. Í sumum er aðeins ein tegund en stærri deildum er gjarnan skipt í smærri hópa. Við sleppum þeirri skiptingu í bili.

Skiptingin grundvallast fyrst og fremst á blómum og kynfrumum tegundanna. Það er mjög í anda Linné hins sænska. Stökkbreytingar þekkjast í flestum gerðum frumna. Ef breytingin verður of mikil eða of hröð hjá kynfrumum þá passa þær ekki lengur inn í kerfið og ekkert verður úr frekari fjölgun. Þannig er það ekki með aðrar stökkbreytingar. Þær koma ekki í veg fyrir æxlun. Þetta hefur leitt til þess að kynfrumur breytast hægar vegna stökkbreytinga en flestar aðrar frumur. Þess vegna er mjög heppilegt að nota kynfrumurnar til að meta skyldleika. Þótt gerð og stærð blóma, ásamt fjölda og staðsetningu fræfla, sé það sem helst er notað til að flokka tegundir í deildir fylgir margt annað með. Þannig má horfa á útlit bruma og fjölda brumhlífapara. Að auki er stærð og útlit laufblaða oft notað sem greiningaratriði ásamt fleiri þáttum en kynfrumurnar eru alltaf aðalmálið. Stóra dóminn fá plönturnar þegar erfðafræðin er tekin með í reikninginn. Tegundir í hverri deild geta í mörgum tilfellum verið það skyldar að þær geta myndað saman frjótt fræ þegar þær eru ræktaðar saman þótt það sé ekki algilt. Þannig er það til dæmis með næfurhlyn, Acer griseum, og skyldar tegundir sem tilheyra deild sem kallast Trifoliata. Aftur á móti er það fágætt ef ekki óþekkt á milli deilda. Hið sama á við um nöfn ættkvísla og deilda, að samkvæmt alþjóðlegum reglum ber að rita þau með skáletri sé þess nokkur kostur. Í fyrri pistlum okkar um hlyntegundir höfum við sagt nánar frá sumum þessara deilda og ef til vill verður það þannig áfram þegar við birtum pistla um einstakar tegundir.

Þótt grasafræðingar horfi til blóma og fræja til að ákvarða tegundir dugar okkur flestum að skoða blöð algengra tegunda til að greina þær að. Til vinstri er broddhlynur, Acer platanoides, en til hægri er garðahlynur, A. pseudoplatanus. Munur blaðanna er augljós og auðvelt er að muna hvor tegundin er kennd við brodda. Um þennan mun fjölluðum við í þessum pistli. Mynd: Sig.A.
Þótt grasafræðingar horfi til blóma og fræja til að ákvarða tegundir dugar okkur flestum að skoða blöð algengra tegunda til að greina þær að. Til vinstri er broddhlynur, Acer platanoides, en til hægri er garðahlynur, A. pseudoplatanus. Munur blaðanna er augljós og auðvelt er að muna hvor tegundin er kennd við brodda. Um þennan mun fjölluðum við í þessum pistli. Mynd: Sig.A.

Heimildum ber ekki endilega saman um fjölda deilda, hversu stórar þær séu eða hvaða tegundir tilheyra hverri. Hér að neðan förum við fyrst og fremst eftir grein sem birt var á vef The Maple Society í kjölfarið á sjöttu alþjóðlegu hlynráðstefnunni í Roscoff, Frakklandi árið 2017. Greinin er eftir E. Davis (2021) sem gefur upp 161 nafn auk fjölmargra undirtegunda. Þetta er ekki verri tala en hver önnur. Í sumum heimildum eru undirtegundirnar flokkaðar sem sérstakar tegundir og eins og við höfum áður greint frá er heildarfjöldinn nokkuð á reiki. Við verjum ekki miklu plássi í það að lýsa hverri deild en vísum í greinina fyrir þá sem vilja kynna sér frekar hinn grasafræðilega mun þeirra. Við styðjumst einnig við vef Trees and Shrubs Online. Þar eru fjölbreyttar upplýsingar og góð grein eftir Crowley (2020).

Hlynur með rauð blöð í skoskum skógarjaðri í september 2025. Mynd: Sig.A.
Hlynur með rauð blöð í skoskum skógarjaðri í september 2025. Mynd: Sig.A.

Acer

Fyrst nefnum við megindeildina. Rétt eins og sjálf ættkvíslin heitir hún Acer. Í henni eru 24 tegundir og fjölmargar undirtegundir. Hana mynda tré og runnar af öllum stærðum og gerðum en blöðin eru vanalega þrí- eða fimmflipótt og mjög dæmigerð fyrir ættkvíslina. Frævængirnir mynda nokkuð gleitt horn.

Innan deildarinnar er meðal annars krítarhlynur, A. sempervirens, sem er kenndur við eyjuna Krít en vex einnig í suðurhluta Grikklands, Tyrklandi og á eyjum Eyjahafs. Þessa tegund hafa íslenskir sóldýrkendur án efa séð. Seinna fræðiheiti tegundarinnar, sempervirens, vísar í að hún er sígræn. Það á við þar sem eilíft sumar ríkir. Hátt uppi í fjöllum fellir krítarhlynur samt laufið á haustin.

Krítarhlynur í um 1.650 metra hæð yfir sjávarmáli á Krít. Þarna fellir hann laufið en fær fyrst þessa fínu haustliti eins og sjá má. Myndina fengum við héðan.
Krítarhlynur í um 1.650 metra hæð yfir sjávarmáli á Krít. Þarna fellir hann laufið en fær fyrst þessa fínu haustliti eins og sjá má. Myndina fengum við héðan.

Í austurhluta Norður-Ameríku vex sykurhlynur, A. saccharum. Um hann höfum við fjallað í sérstökum pistli. Svo er í þessari deild garðahlynur, A. pseudoplatanus. Hann er algengasta hlyntegundin í ræktun á Íslandi en hann vex villt í miðhluta Evrópu. Garðahlynur getur myndað blendinga með öðrum tegundum deildarinnar. Í vinnslu eru pistlar um tegundina sem bíða birtingar.


Sigurður Arnarson er í stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Smellið hér til að sjá allan pistilinn: Deildir og hlyntegundir heimsins

Erfðafræði birkis

Sigurður Arnarson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:30

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00