Fara í efni
Menning

Besti kvartett sem sungið hefur á Íslandi?

MA kvartettinn, frá vinstri: Þorgeir Gestsson, Steinþór Gestsson, Jakob Hafstein og Jón Jónsson.

TÓNDÆMI – 30

Tónlist hefur verið í hávegum höfð á Akureyri allt frá síðari hluta 19. aldar og stendur í miklum blóma nú sem endranær. Akureyri.net mun næstu misseri rifja upp eitt og annað úr tónlistarsögu bæjarins í vikulegum pistlum. Þeir birtast alla miðvikudaga. _ _ _

Tónlist hefur í áratugi skipað sess í Menntaskólanum á Akureyri. Þar hafa verið starfandi hljómsveitir, kórar og minni söngflokkar, þekktastur allra þeirra hópa er M.A.-kvartettinn, sem stofnað var til meðan fjórmenningarnir voru í skólanum, og varð gríðarlega vinsæll eftir að þeir luku námi.

Lög um menntaskóla á Akureyri voru staðfest vorið 1930. Gísli Jónsson, íslenskukennari við skólann til áratuga og ritstjóri Sögu Menntaskólans á Akureyri 1880-1980,  segir þar að í upphafi menntaskólans hafi engin kennsla verið í söng né söngfræði, en haustið 1931 réðst Björgvin Guðmundsson til kennslustarfa við skólann. Hann stofnaði og æfði kóra í skólanum og stjórnaði aðalkór skólans meðan heilsa entist, en þá tók Hermann Stefánsson við.

„Hitt er þó frægast að á þessu sama ári 1932-33 tóku fjórir nemendur að æfa „fersöngslög“ síðari hluta vetrar. Þetta varð M.A.-kvartettinn, besti kvartett sem sungið hefur á Íslandi. Þessir fjórmenningar voru Steinþór Gestsson frá Hæli (2. tenór), Þorgeir bróðir hans (1. tenór) báðir í 3. bekk. Jakob V. Hafstein (1. bassi) frá Húsavík og Jón Jónsson (2. bassi) frá Ljárskógum, báðir í 5. bekk. Sungu þeir þegar nokkrum sinnum á hátíðum skólans og tvisvar á skemmtunum í bænum þennan vetur. Áttu þeir seinna eftir að gera skólann frægan og skemmta allri þjóðinni með list sinni,“ segir Gísli Jónsson.

Byrjuðu „út úr leiðindum“

Steinþór Gestsson rifjaði það upp, í Vikunni árið 1963, hvernig ævintýrið hófst; segir samsönginn eiginlega hafa byrjað „út úr leiðindum,“ eins og hann tók til orða. „Þrír okkar komust ekki heim í jólafrí, og þá fórum við að raula saman. Við Hælisbræður komumst ekki hingað heim í Hreppa, og Jón [frá Ljárskógum í Laxárdal] komst ekki heim til sín vestur í Dali. Og það var eiginlega tilviljun, að þetta varð nokkuð meira. Bekkurinn, sem Jón og Jakob voru í, ætlaði að halda skemmtun, og það vantaði skemmtiatriði. Þá æfðum við saman nokkur Bellmannslög, og þetta þótti takast vel, svo við héldum áfram. Við æfðum mikið um veturinn og sungum í skólanum, og einu sinni í útvarpið. Það sungum við fyrir norðan og það var sent gegnum síma suður og sent beint út. Það heyrðist víst nokkurn veginn.“

Steinþór sagði frá því síðar í Árnesingi að þremenningarnir, þeir bræður og Jón, hafi stundum æft sig saman í sal menntaskólans og þar hefði Jakob fyrst heyrt í þeim.

„Við byrjuðum þrír að syngja en þegar kom til að okkur langaði að hafa meira hljóðfæri en tríó, vildum hafa kvartett, fórum við að leita að manni sem félli inn í raddir okkar þriggja. Það heppnaðist að við töldum og ég held einmitt að það sé mikið atriði til þess að ná tökum, að raddirnar falli vel saman þegar um kvartett söng er að ræða,“ sagði Steinþór í sjónvarsþætti 1992.

M.A.-kvartettinn hélt fyrstu opinberu tónleikana 17. febrúar 1935 í Nýja-bíói í Reykjavík. Fyrstu árin sungu fjórmenningarnir ætíð án undirleiks, en 1937 fengu þeir Bjarna Þórðarson píanóleikara sér til liðsinnis svo og Carl Billich, sem sá um að útsetja tónlistina. Eftir að Bretar handtóku Austurríkismanninn Billich eftir hernám Íslands, og fluttu hann til Bretlands, kom Árni Björnsson í hans stað og starfaði með kvartettinum vinsæla síðustu misserin.