Fara í efni
Minningargreinar

Steingrímur Björnsson – lífshlaupið

Steingrímur Ingi Björnsson, rafvirkjameistari, verslunarmaður og fyrrverandi knattspyrnumaður, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri þriðjudaginn 13. október, 85 ára að aldri. Steingrímur fæddist í Lyngholti í Glerárþorpi, sem seinna sameinaðist Akureyri, 26. júní 1941.

Foreldrar Steingríms voru Björn Árni Björnson, f. 1901 d. 1966, og Kristín Aðalsteinsdóttir, f. 1901 d. 1991. Systkini Steingríms eru: Kristbjörg, Jóhanna Kristín B. Austfjörð, Aðalsteinn og Kristbjörn, sem öll eru látin.

Eftirlifandi eiginkona Steingríms er Gunnur Gunnarsdóttir, f. 1944. Þau gengu i hjónaband 10. september 1961. Börn þeirra eru fimm:

Rúnar, f. 1961, er kvæntur Sæunni S. Jóhannsdóttur. Dætur þeirra eru Jóhanna Sif, Arna Ósk og Elfa Rán.

Halla f. 1963 er gift Guðbirni Gíslasyni. Börn þeirra eru Snorri Páll, Hafdís Ýr og Sóley Inga.

Harpa f. 1967, eiginmaður hennar er Vignir Már Þormóðsson. Dætur þeirra eru Sandra Rut, Gunnur og Magnea.

Heiða f. 1968, gift Hólmari Karli Þorvaldssyni. Börn þeirra eru Unnur Þóra, Sigrún Eir, Kristín Ilmur og Dagur Karl.

Hulda f. 1976, gift Þóri Sigmundssyni. Synir þeirra eru Þorri Steinn, Elís Agnar og Axel Sigmar.

Steingrímur lærði rafvirkjun við Iðnskólann á Akureyri og hlaut meistarabréf í iðn sinni. Hann starfaði lengi við rafvirkjun en vann verslunarstörf lengst af starfsævinnar.

Steingrímur stundaði knattspyrnu af kappi frá unga aldri. Hann spilaði með Þór og Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA). Steingrímur, sem var eldfljótur framherji, lék með ÍBA frá 1958 til 1969 og skoraði 41 mark í 73 leikjum í efstu deild.

Steingrímur var fyrsti Þórsarinn sem valinn var til að spila fyrir Íslands hönd. Hann tók þátt í fjórum leikjum með A-landsliði Íslands á árunum 1960-1962 og skoraði eitt mark – í 4:1 sigri á Hollendingum á Laugardalsvelli 1961.

Eftir að Steingrímur lagði knattspyrnuskóna á hilluna fékkst hann við þjálfun, dómgæslu og sinnti ýmsum félagsstörfum.

Útför Steingríms Inga Björnssonar fer fram frá Glerárkirkju í dag, föstudaginn 23. október, klukkan 13.00.

Steingrímur Björnsson

Gunnur Vignisdóttir skrifar
23. október 2026 | kl. 06:00

Eiríkur Bóasson

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
16. október 2026 | kl. 15:35

Eiríkur Bóasson

16. október 2026 | kl. 15:30

Flosi Kristinsson – lífshlaupið

03. október 2026 | kl. 06:00

Flosi Kristinsson

Ásta F. Flosadóttir skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Ari Baldursson – minningarljóð

30. september 2026 | kl. 19:30