Fara í efni
Minningargreinar

Ari Baldursson – minningarljóð

Ari Baldursson
fd. 26.07.1959 - d. 17.09.2026

Kveðja frá Jóni Hlöðver Áskelssyni

Daggardropar af fölu strái falla
og finn ég strenginn klökkva í brjósti hljóma,
sá sem áður með strengjum gladdi alla
er burtu farinn með sitt bros og Ijóma.

Í huga mínum sterkir strengir hljóma
strákur frá Bakka lætur gamminn geysa.
Ég get flest lögin látið enduróma
leikið söngva hans sem þrautir leysa.

Ég þekki ei neinn með hlátur svo ofur hreinan
sem heillaði mig og gladdi sí að mæta.
Ari valdi ætíð veginn beina
að veita öðrum gleði og mannlíf bæta.

Ungum mætti sveini á heimaslóðum
í sól á Bakka við harmonium forðum.
Þá blandaðist við söng úr Ljóðum og lögum
ljúfust stemming sem lýst ei verður með orðum.

Ég óska þess að Ara minning megi
milda sorg er berum við í hjarta.
Björt skal vera birtan frá hans vegi
og bregða ljósi á alla framtíð bjarta.

Ari Baldursson

30. september 2026 | kl. 08:00

Ari Baldursson

Benedikt Barðason skrifar
30. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Anna Gréta Halldórsdóttir skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Íþróttafélagið Þór skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00

Halldór Hallgrímsson skipstjóri

Sigfús Ólafur Biering Helgason skrifar
28. ágúst 2026 | kl. 08:00