Eiríkur Bóasson
Garðurinn uppfyllti allar okkar óskir og þá varð vinátta okkar Eika gróðursett í sál og sinni. Við urðum miklir mátar. Eiki Bó var gæddur þeirri guðsgáfu að falleg kvæði sóttu á hans lagrænu sköpunarþörf og fengu þannig vængi söngsins. Ljóðin sín söng hann við sinn gítarleik, sem gladdi marga ósegjanlega. Lítið varð úr efndum mínum á samkomulagi okkar um uppgjör garðvinnunnar, því í minn hlut átti að koma útsetningar á lögum hans fyrir kóra, einhverjar voru þær þó. Við tókum í mörg ár á móti grenitré sem gjöf frá Eika og það boðaði ljósum skreytt úti á útidyrapalli komu ljósahátíðarinnar. Svo lengi sem við lifum mun sambærilegt tré senda sín ljós og minna á okkar ljúfa vin Eirík Bóasson. Sönglögin hans Eika munu áfram lifa og skógarnir hans að vaxa. Stærsti og breiðasti stofninn er þó horfinn. Hann skilur eftir sig fallegt rjóður þar sem vinir Eiríks og vandamenn geta áfram sungið ljúflingsljóð við varðeld minninganna.
Blessuð sé minning góðs drengs!
Ég sendi Herborgu, Bjarna og Bóasi innilegustu þakkar- og samúðarkveðjur okkar Löllu.
Jón Hlöðver Áskelsson
Flosi Kristinsson
Flosi Kristinsson – lífshlaupið
Ari Baldursson – minningarljóð
Ari Baldursson