Fara í efni
Minningargreinar

Flosi Kristinsson – lífshlaupið

Flosi Kristinsson var fæddur í Hringsdal á Látraströnd 10. mars 1929. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grenilundi á Grenivík þann 24. september sl.

Flosi var sonur hjónanna Kristins Indriðasonar frá Miðvík og Sigrúnar Jóhannesdóttur frá Ytra-Hóli í Fnjóskadal. Kristinn og Sigrún bjuggu síðast og lengst í Höfða í Grýtubakkahreppi. Flosi var níundi í röð 15 systkina sem nú eru öll látin. Systkinin voru: Jóhannes Steinþór, Ragnheiður, Kristmann, Valdemar Gestur, Sigríður Rósa, Indriði, Sigurður Árni, Ásmundur Hreiðar, Flosi, María Soffía, Anna Kristbjörg, Jón Ingvi, Jóhannes, Ásgeir og Haraldur Kristófer.

Fjölskyldan flutti frá Hringsdal í Höfða árið 1932. Flosi vann ýmis landbúnaðarstörf frá blautu barnsbeini, var m.a. um tíma í vist á Lómatjörn. Þá vann hann við veglagningu í Ystuvíkurhólum árið 1946 þegar vegsamband komst á eftir ströndinni til Grenivíkur. Flosi var á síld og á sjó nokkrar vertíðir, m.a. á Akraborginni, Stjörnunni og Bergi frá Vestmannaeyjum. Árið 1950 keyptu bræðurnir Flosi, Ásmundur og Kristmann Höfðajörðina af foreldrum sínum. Flosi kom þó ekki heim í búskapinn fyrr en árið 1955, síðan þá hefur hann stundað búskap á Höfða.

1970 trúlofaðist Flosi eftirlifandi eiginkonu sinni; Þórdísi Guðrúnu Þórhallsdóttur, f. 5. ágúst 1950. Þau giftu sig 5. ágúst 1995. Foreldrar hennar voru Þórhallur Einarsson frá Djúpalæk og Þóra Þorsteinsdóttir frá Litla-Garði við Akureyri.

Dætur Flosa og Þórdísar eru:

Ásta Fönn Flosadóttir f. 28. janúar 1975, maður hennar er Þorkell M. Pálsson, f. 11. mars 1971 og börn þeirra eru Sigrún Þóra, Sigurður Einar og Páll Þórir. Sigrún Þóra er gift Breka Arnarssyni og eiga þau dótturina Unni Ástrós.

Inga Hrönn Flosadóttir f. 2. október 1976. Dóttir hennar er Guðrún Birna Örvarsdóttir.

Flosi stundaði búskap á Höfða alla tíð af miklu kappi, ræktaði og byggði upp öll hús á jörðinni. Þau hjón bjuggu með sauðfé alla tíð, sinntu um æðarvarpið og voru með töluverða kartöflurækt um árabil. Flosi hafði alla tíð mikinn áhuga á þjóðmálum og sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hans bestu stundir voru í slarki í göngum og smalamennsku, girðingabrasi og kartöflustússi. Hugurinn var bundinn búskapnum fram á síðasta dag. Síðustu mánuði dvaldi hann á hjúkrunarheimilinu Grenilundi á Grenivík. Herbergið hans hét Hringsdalur og þar lést hann þann 24. september sl.

Flosi Kristinsson

Ásta F. Flosadóttir skrifar
03. október 2026 | kl. 06:00

Ari Baldursson – minningarljóð

30. september 2026 | kl. 19:30

Ari Baldursson

30. september 2026 | kl. 08:00

Ari Baldursson

Benedikt Barðason skrifar
30. september 2026 | kl. 06:00

Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið

14. september 2026 | kl. 08:00

Ingunn Björk Jónsdóttir

Anna Gréta Halldórsdóttir skrifar
14. september 2026 | kl. 06:00