Flosi Kristinsson
Það skefur í sporin, dúðað stelpuskott spennir sig í að stökkva, feta í slóðina. Pabbi er farinn í húsin og er stórstígur. Hún var of lengi að klæða sig, hann dreif sig á undan. Hún veltir því fyrir sér hvort hún nái nokkurntíma að feta í slóðina hans.
Í stórhríð berst hann milli húsa og bæjar til gegninga, kemur inn snjóugur, með klaka í augabrúnum, blik í augum og brosandi. Hann gerir sér sérstaka ferð út í kartöflugeymslu til að athuga hvort ekki sé allt í lagi þar. Þetta finnst honum gaman.
Við mokum heyi í blásarann og stöndum sitthvorumegin við. Hann talar um kosti þess að vera jafnvígur á báðar og kennir mér að skipta um áttina við moksturinn, þannig endist mokstursmaður lengur. Við hárum í féð og hann talar um að það sé algjör óþarfi að áætla sérstaklega hvað hver kind á að fá mikið, best að gefa svo ekki sé upp étið, það sé besta fóðrunin. Ekkert að gera með skýrsluhald og skriffinsku, ekki eru lömbin léttari þó hann sleppi slíkum óþarfa. Óttinn við heyleysi er inngróinn, samt hefur hann á öllum ferlinum aðeins einusinni lent í því, þreytist ekki á að tala um 1979 og minna á að þessi staða geti alltaf komið upp aftur.
Við erum í girðingavinnu á Hellutánni, setjum vírnet út í Lónin, tunnu á Selsbjargið. Hann fer fram á ystu brún en vill ekki að ég fari of tæpt. Allt getur hann. Við gröfum holur fyrir hornstaura og púkkum með. Það skiptir máli að velja góða staura og réttu steinanna í púkkið, það skal vanda sem lengi á að standa. Hann gerir holur í jörðina, lemur niður staurana með járnkarli og þá er vissara að halda rétt við staurinn. Notalegt er að hossast heim á rússanum seint að kvöldi eftir svona dag, spjalla um hvar væri gott að grafa skurði, setja girðingar, endurrækta. Ég spyr, hann svarar, hann hefur lag á að tala við krakka eins og þau séu fullorðið fólk, virkjar unglingana með sér. Vinnuaflið er til að nota það, enginn er svo aumur að ekki finnist verkefni sem viðkomandi veldur. Stundum bara að vita hvar bóndinn henti frá sér hamri og naglbít.
Við tökum upp kartöflur, það rauða er hægt að taka upp með vélinni en ekki gullaugað. Það er fjöldi manns í vinnu við að skríða Hólinn í Miðvík. Til að nýta daginn er tekið upp fram í myrkur, vagnarnir lestaðir og ekið heim á opnum traktorum eftir þjóðveginum. Fordinn er ljóslaus, enginn tími til að laga það, en pabbi er með vasaljós sem hann kveikir á þegar hann mætir bílum. Hann sér eins og köttur í myrkrinu en bílstjórarnir sem hann mætir eru með hjartslátt lengi á eftir.
Við göngum varpið og hirðum dúninn. Hann er upptekinn af flugvargi og helvítis tófunni, nú þarf að fá skotmann til að vera í varpinu. Sjálfur er hann með gilt byssuleyfi til 2028, líklega gagnslaust núna, en útilokum ekkert samt.
Þú verður að fylgjast með spánni. Öllu stjórnar veðrið. Þarf að hýsa? Smala innfyrir? Fara í eftirleitir? Er þurrkur framundan? Hvenær gefur áburðarlogn? Er kominn tími á að vinna garðana, úða, taka upp? Frá degi til dags er brugðist við eftir veðrinu, verkefnin valin. Hann segist vera eðlislatur og þyki gott að sofa, en verkefnin reki sig áfram.
Alla daga, árið um kring,
einhverju að tosa.
Mjög á kafi í moldarbing,
má þar kenna Flosa.
Hauk og Bensa tek ég með,
hérna hvergi dokum.
Rækilega í Rússan treð,
rúmlega hundrað pokum.
(SH)
Best er að fara í göngur eftir hæfilegt skítveður, gott að Skaparinn smali aðeins fyrst. Hann býr sig út með hrausta hesta, lambhúshettuna og gúmmígallann, föðurlandið, stígvél og gallabuxur. Gin í greip og jafnvel eitthvað sterkara sett í töskuna. Mamma nestar. Hann gætir þess að koma aldrei heim með afgang af nestinu, það gæti þýtt að hann fengi minna með næst. Hundarnir njóta góðs af við Glúfurárvað.
Flosi í Höfða frískur enn
og á fullu í gangnaönnum.
Ötulli en flestir yngri menn
af ber hann sínum grönnum.
Í þessum lambhúshettuhaus
hugurinn vakir þindarlaus.
(Árni Geirhjörtur)
Kosningarétturinn er mikilvægur, hann missir aldrei af kosningum, ekki einu sinni þessari síðustu. Hann er þó stundum í vandræðum með hvað skal kjósa og setur atkvæðið oft á þá sem eru að berjast gegn straumnum. Ekki feimin við að kjósa konur, menn verði að horfast í augu við það að þær ráði í raun öllu, og það sé farsælast.
Hann skammast yfir pólitíkinni, kerfinu og allri vitleysunni. Það er með ólíkindum að menn geti ekki skilið að vatn rennur ekki upp í móti. Sýnir passlegan mótþróa við fyrirmælum, finnur lausnir, fer sínar eigin leiðir, kóngur í ríki sínu. Byggir kartöflugeymslu og fer svo í að fá teikningar og byggingaleyfi.
Hvernig er þetta eiginlega með brúna á Botni? Á ekkert að fara í að byggja hana upp? Sjálfur fór hann með hóp með sér árið 1974 og reisti þessa brú, þeir hlóðu undirstöður úr grjóti og drógu rekavið úr fjörunni í verkið. Hún entist lengi. Siggi fer með hópnum sem endurbyggir brúna, afi þarf nákvæma skýrslu þegar heim er komið. Allra helst hefði hann viljað fara með í þetta verkefni, en nú getur hann það ekki.
Ellin, hún er andstyggileg. Beygir sterkustu járnkarla. Rænir styrk, daprar sjón og heyrn, lamar getu. Dregur yfir værðarvoð. Það átti ekki við hann. Á spítalanum afþakkaði hann boð um pláss í Hlíð, hann gat sæst á hvíldarinnlögn út á Grenivík, en leit á það sem millibilsástand, hann var alltaf á leiðinni heim. Annað ekki til umræðu. Allir aðrir vissu að hvíldarinnlögnin væri varanleg. Í huganum þindarlausa aðeins tímabundið ástand. Það tók á, sjálfsagt vissi hann vel að þetta var slagur sem hann gat ekki unnið, en að játa sig sigraðan, nei, ekki fyrr en í fulla hnefana. Þegar að því kom, fór hann án hiks. Þetta var komið gott.
Laufvindar, haustblær yfir, móar og lyng breyta um lit. Árla hann aftur rís, ungur af beð. Bregður beisli á Teit og leggur á heiðina. Þeir hafa aldrei getað smalað almennilega þessir ungu bændur, örugglega er eftir fé í Tungunum sem mun fenna ef vetur sest snemma að. Það fer að rigna og kólna, en hann lætur sér í léttu rúmi liggja. Það er gaman að berjast úti í stórhríð og komast heim til að segja frá því.
Hvar heima er eftir þessa för veit ég ekki, en kýs að trúa að þar séu dýrðlegir endurfundir stóra systkinahópsins úr Höfða. Þar verður hlegið og gantast, hávaði mikill og gleði. Með 97 ár á vinnustundamælinum heldur hann í það samkvæmi. Góða ferð, og takk fyrir allt.
Ásta F.
Ari Baldursson – minningarljóð
Ari Baldursson
Ari Baldursson
Ingunn Björk Jónsdóttir – lífshlaupið