Eiríkur Bóasson
Kveðja frá reglubræðrum Öskju, reglu musterisriddara.
Kær reglubróðir, Eiríkur Bóasson lést þann 3. október sl. eftir harða baráttu við krabbamein.
Það er ekki liðinn mánuður síðan við Musterisriddarar kvöddum hinstu kveðju annan bróður reglunnar, Ara Baldursson og svona þung högg er andlát þessara reglubræðra okkar dundu á okkar er erfitt að standa af sér, það hriktir í.
Eiríkur var styrk stoð í reglu okkar í mörg herrans ár og gegndi þar m.a. ritaraembætti og sat í meistararáði reglu okkar í mörg ár. Öll hans störf þar vann Eiríkur af fagmennsku og kostgæfni.
Eiríkur var einstaklega skemmtilegur persónuleiki, staðfastur á stundum, en glettinn og alltaf stutt í hlátur eða kankvís tilsvör frá honum sem vöktu hlátur.
Eiríkur var tónlistarmaður og naut reglan okkar bæði hæfileika hans sem hljóðfæraleikara og til er þó nokkuð af lögum er hann samdi og veit ég að karlakórar hér í Eyjafirði hafa fengið Eirík til að semja fyrir sig lög sem svo hafa verið sungin víðar.
Eiríkur eða Eiki Bó eins og hann var stundum nefndur var mjög ötull í að efla félagsstarf reglubræðra og var m.a í fylkingarbrjósti og frumkvöðull að hinu sigursæla krulluliði Öskju sem enn þann dag í dag er mjög öflugt og hefur unnið marga glæsta sigra. Þar mun nafn Eiriks verða meitlað í stein sem ekki verður afmáð enda var krullulið Öskju, liðið hans og var hann yfirmáta stoltur af sínum mönnum þegar fyrsti tiltillinn vannst og hann fylgdist vel með liðinu og hvatti sína krullumenn til dáða. Þetta var sannarlega liðið hans.
Allan tímann í veikindum sínum stóð Eiríkur í þeirri trú og sannfærður um að hafa sigur og bar ekki á neinu öðru í fari hans en að hann væri alheill.
Aldrei bar á að hann bognaði í þessum erfiðu veikindum og sótti fundi hjá okkur í reglu musterisriddara eins lengi og heilsa hans mögulega leyfði.
Síðustu mánuði er ljóst var að barátta hans við sjúkdóminn var að harðna og sjúkdómurinn að herða takið meir og meir þá kom í ljós þetta mikla æðruleysi er Eiki bjó yfir og aldrei kvartaði hann né bognaði og síðustu daga hans stóð hann og mætti skapara sínum af þvílíkri stillingu og sannfærður um að framundan væri bein braut hversu megin foldar sem hún yrði.
Eiríkur markaði spor í reglu musterisriddara sem ekki mun fenna í og við reglubræður hans lútum nú höfði í bæn og innilegri þökk fyrir árin sem við áttum með honum og þökkum þau og kveðjum góðan dreng.
Huggun harmi gegn er að nú eru þrautir allar að baki hjá kærum bróður Eiríki Bóassyni.
Fjölskyldu Eiríks, börnum, barnabörnum sem og öllum öðrum ástvinum hans sendum við reglubræður í Öskju reglu Musterisriddara okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Kær reglubróðir og góður drengur er genginn.
Blessuð sé minning Eiríks Bóassonar.
Reglubræður Öskju reglu musterisriddara
Flosi Kristinsson
Flosi Kristinsson – lífshlaupið
Ari Baldursson – minningarljóð
Ari Baldursson