Fara í efni
Minningargreinar

Jónas Sigurjónsson

Fallinn er frá einstakur öðlingur. Kynni okkar af Jónasi, eða Jónasi í Valsmíði eins og hann var gjarnan kallaður, hófust fyrir 28 árum þegar við Freyja urðum meðeigendur að Brekkugötu 14. Okkur varð það fljótt ljóst að við höfðum eignast einstaka nágranna í þeim hjónum Jónasi og Fríðu.

Það var gaman að brasa með Jónasi. Hann var auðvitað þekktur hagleiksmaður og listasmiður. Gömlu virðulegu húsi fylgir mikil umhirða svo sómi sé að. Öll vorum við samstíga í því enda húsið með sál sem óhjákvæmilegt er að tengjast sterkum böndum. Ekki var endilega um að ræða stórar framkvæmdir. Ég minnist þó sérstaklega tveggja framkvæmda sem voru af stærri gerðinni. Við vorum sérstaklega stoltir af því hvað okkur tókst vel til við gerð lóðarinnar norðan við húsið með stóru og góðu bílastæði fyrir húsið. Hin framkvæmdin var þegar við endurgerðum svalahandriðin að hluta. Þar var mikið í húfi enda húsið með þremur svölum með mjög formfögrum steyptum handriðum. Mikið sem ég er þakklátur fyrir þetta samstarf okkar Jónasar.

Eins og flestir átti Jónas sín sérkenni. Hann borðaði ekki kjöt og drakk ekki kaffi en mikið sem hann elskaði vöfflur og pönnukökur með sultu og rjóma. Aldrei heyrði ég Jónas blóta en í minningunni er eitt orð sem honum var tamt að nota þegar hann vildi leggja áherslu á eitthvað. Orðið askolli. Það notaði hann mikið jafnt í neikvæðri merkingu sem jákvæðri. Askollans vesen er þetta! Askolli er þetta fínt!

Þar kom að tímabært þótti að minnka við sig húsnæði og með skömmu millibili seldum við. Við erum þakklát fyrir árin 23 sem við áttum með Jónasi og Fríðu í Brekkugötu.

Síðustu ár eftir að krabbameinið tók sig upp aftur hafa verið Jónasi erfið. Einkum þó síðustu mánuðir eftir óvænt veikindi og fráfall Fríðu. Það var langt lokaskeiðið hjá Jónasi sem þó gat ekki endað nema á ein veg. Alltaf heilsaði hann þó brosandi og hress fram undir það síðasta. Ég er sérstaklega þakklátur fyrir að hafa náð að fara með Jónas að skoða nýja og glæsilega aðstöðu Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis sem félagar hans í Oddfellow höfðu boðið félaginu og standsett. Þessi stuðningur Oddfellow við Krabbameinsfélagið var honum hjartans mál. Þessi ferð mátti ekki seinna vera og hann var glaður en þreyttur að henni lokinni. Í síðustu heimsókninni til Jónasar á sjúkrahúsið var bara brosið eftir.

Við Freyja og börn okkar sem fengu að kynnast þessum yndilegu hjónum, Jónasi og Fríðu, sendum börnum þeirra og fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Pétur Þór Jónasson

Jónas Sigurjónsson

Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 12:15

Jónas Sigurjónsson

Vala Ólöf Jónasdóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Helga Björg Jónasardóttir skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Jóhannes Már Jóhannesson skrifar
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Systkini Hallfríðar Einarsdóttur og makar skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00

Jónas Sigurjónsson

Ragna Lárusdóttir og Snorri Gylfason skrifa
19. júní 2026 | kl. 11:00