Fara í efni
Menning

Þeir verða að halda áfram hærra – hærra

Hljómsveit Akureyrar hin fyrri – sú fyrsta ætti að segja núna – stofnuð 1914. Sitjandi frá vinstri, Sigurður Þórðarson, Ólafur Tr. Ólafsson, Helgi Pétursson, Sigþór Magnússon, Sigurgeir Jónsson, Heinrich Bebensee og Karl Lillendahl. Standandi frá vinstri: Jón Ívarsson, Hjalti Espólín, Sveinn Bjarman og Páll Þorkelsson.

TÓNDÆMI – 29

Tónlist hefur verið í hávegum höfð á Akureyri allt frá síðari hluta 19. aldar og stendur í miklum blóma nú sem endranær. Akureyri.net mun næstu misseri rifja upp eitt og annað úr tónlistarsögu bæjarins í vikulegum pistlum. Þeir birtast alla miðvikudaga. _ _ _

Hljómsveit Akureyrar hélt tónleika í Hofi um síðustu helgi undir stjórn Michaels Jóns Clarke. Hljómsveitina – sinfóníuhljómsveit áhugamanna á Akureyri – stofnaði hann fyrir nokkrum misserum og fyrstu tónleikarnir voru haldnir í desember 2023. Þetta er í þriðja skipti, hið minnsta, sem hljómsveit með þessu nafni starfar á Akureyri og vert að segja svolítið frá hinum.

Hljómsveit Akureyrar var stofnuð 1914 og starfaði í nokkur misseri. Konsert var auglýstur í Akureyrarblaðinu Íslendingi í nóvember 1915 og eftir því sem næst verður komist birtist orðið „hljómsveit“ þá í fyrsta skipti á prenti.  

Hljómsveit Akureyrar „hin síðari“ – sem starfaði frá 1929 til 1934. Frá vinstri: Skafti Sigþórsson, Vigfús Sigurgeirsson, Theodor Lillendahl, Gunnar Sigurgeirsson, Steingrímur Þorsteinsson, Karl Ottó Runólfsson, Vigfús Jónsson, Ingimar Jónsson, Guðjón Bernharð, Sveinn Bjartmann, Þorvaldur Steingrímsson og Óskar Ósberg.

Í sama blaði sagði að tónleikunum loknum: „»Hljómsveit Akureyrar« nefnist félag hér í bæ, sem síðast liðinn vetur stundaði samspil nokkurra hljóðfæra. Ljet þessi hljómsveit (Orkester) þá heyra til sín nokkrum sinnum og gast mönnum framar vonum vel að, þegar þess var gætt, hve stuttan tíma mennirnir höfðu lagt stund á jafn vandasama ment, og þar við bættist, að þeir gátu aðeins stundað þessa list í frítímum sínum, eftir langa og stranga erfiðisvinnu. Svo mun vera varið lífsstöðum sumra þeirra er í hljómsveitinni eru.“

Síðan segir: „Síðastliðinn sunnudag ljet hljómsveitin heyra til sín í Good-Templarahúsinu, fyrsta skifti á þessum vetri. Ljek hún 11 lög eftir ýmsa tónsmiði. Verður ekki anað sagt, en að samspilið hafi yfirleitt farið mjög laglega. Stjórn flokksins var í höndum hr. Hjalta Sigtryggssonar. Ljet honum mjög vel að stjórna floknum og sýndi hann þar glögga söngstjórahæfileika – bæði lipurð og alvöru og ljet gegna stjórn sinni fljótt og vel.

Menn skemtu sér hið bezta, ef marka má lófaklapp og »da capo« hróp áheyrendanna, því svo má segja að hljómsveitin yrði að endurtaka hvert lag, er á skemtiskránni var.

Vonandi láta þessir áhugasömu menn ekki hjer við sitja, heldur verða þeir að halda áfram hærra, hærra – ná frekari fullkomnun í þessari list og láta oss njóta góðs af smátt og smátt.“

Auglýsing frá 1933 – fyrir síðustu tónleika Hljómsveitar Akureyrar áður en stjórnandinn Karl O. Runólfsson flutti til Reykjavíkur.

Í Sögu Akureyrar segir að bæjarbúar hafi verið dyntóttir í garð sveitarinnar og sótt tvenna tónleika hennar árið 1915 misvel. „Árið eftir héldu Hjalti [Espólín] og félagar uppteknum hætti og spiluðu þá meðal annars tónverk úr tveimur óperum Wagners fyrir troðfullu húsi áheyrenda. Þegar leið fram yfir páskana þetta vor, 1916, var eins og allur vindur væri úr hljómsveitinni og er hennar ekki getið upp frá því.“

Það er raunar nefnt í blaðinu Norðurlandi í janúar 1918 að Hljómsveit Akureyrar hafi aðstoðað Þórarin Guðmundsson fiðluleikara á tvennum tónleikum í leikhúsinu um áramót en síðar er ekki minnst á hljómsveit með þessu nafni fyrr en 1929, eftir að Karl Ottó Runólfsson, tónskáld og stjórnandi, flutti til bæjarins.


Karl Ottó var fimm ár á Akureyri og stjórnaði þann tíma lúðrasveitinni Heklu og umræddri hljómsveit. Héldu lúðrasveitin og hljómsveitin nokkrum sinnum sameiginlega tónleika. Karl Ottó flutti til Reykjavíkur á ný 1934 en árið áður var flutningur hljómsveitarinnar og Karlakórsins Geysis á verki stjórnandans, Förumannaflokkar þeysa, við ljóð Davíðs Stefánssonar, gefið út á hljómplötu af Columbia útgáfufélaginu í London á vegum Fálkans. Verkið hafði Hljómsveit Akureyrar frumflutt síðasta vetrardag 1932, ásamt Geysi, á tónleikum í Samkomuhúsinu. Að ofan má sjá miðann á hljómplötunni.