Menning
														
Sigurður les eigin ljóð í Davíðshúsi á morgun
											
									
		16.02.2024 kl. 09:30
		
							
				
			
			
		
											 
									Sigurður Ingólfsson skáld kynnir nýjustu ljóðabók sína, Mold, í Davíðshúsi á morgun, laugardag.
Sigurður hefur gefið út fjölmargar ljóðabækur frá því fyrsta bókin hans kom út árið 1986 ásamt því að þýða franskar bókmenntir. Nýjasta verkið, Mold, kom út í lok síðasta árs. Í henni er tekist á við tilvistarlegar spurningar frá vöggu til grafar. Á morgun flytur Sigurður ljóð úr Mold, einnig úr eldri verkum og úr komandi ljóðabók.
- Frétt Akureyri.net um bók Sigurðar, Mold: „Hringrás lífsins í öllum sínum gerðum“
Viðburðurinn í Davíðshúsi á morgun hefst kl. 15.00. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Í tilkynningu frá Minjasafninu er þess getið að safnapassinn sé á tilboði í febrúar og kosti þá 2.000 krónur. Hann gildir allt árið á Minjasafnið, Nonnahús, Davíðshús, Leikfangahúsið og Gamla bæinn á Laufási.
Viðburðir á næstunni í Davíðshúsi:
- 2. mars - Kristján frá Djúpalæk kveður sér hljóðs í tali og tónum - Kristín Heimisdóttir & Sigurður J. Jónsson
- 14. mars - Takk fyrir að vera mannleg - Sigríður Soffía Níelsdóttir
 
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                            