Menning
Moritz Christiansen og félagar á Minjasafninu
Tríó Moritz Christiansen heldur tónleika á Minjasafninu föstudaginn 7. ágúst kl. 20. Tríóið er frá Hamborg en er á tónleikaferðalagi um Ísland. Tríóið flytur léttan norrænan djass þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur í gegnum tónlist, að því er segir í tilkynningu.
Tríóið skipa Moritz Christiansen, saxófónleikari, Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari. Aðgangseyrir 1000 kr - ókeypis fyrir handhafa safnapassa Minjasafnsins.