Fara í efni
Menning

Portrettverk „óþekka barnsins“ af Matthíasi

Snorri Ásmundsson og portrett hans af Matthíasi Jochumssyni.

SÖFNIN OKKAR – 90

Frá Listasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.

Snorri Ásmundsson
Matti
Akrýl á striga
2007

Snorri Ásmundsson hefur stundum verið kallaður „óþekka barnið“ í íslenskri myndlist. Hann vinnur gjarnan með samfélagsleg „tabú“ eins og pólitík og trúarbrögð og hafa gjörningar hans löngum hreyft við samfélaginu. Snorri ögrar félagslegum gildum og skoðar takmörk náungans og sín eigin, en fylgist jafnframt grannt með viðbrögðum áhorfandans. Verk hans eru oftast gagnrýnin og endurspegla ákveðið uppbrot á siðvenjum sem og afstæðar hugleiðingar. Hafa verkin jafnan vakið mikla athygli á Íslandi og erlendis. Hann hefur hrist upp í samfélaginu og spurt erfiðra spurning um trú, stjórnmál og samfélagsleg tabú með eftirtektarverðum gjörningum. „Stundum er sagt við mig að ég sé „sósíal skúlptúr,“ segir Snorri í sýningarskrá sem gefin var út vegna sýningar hans Franskar á milli í Listasafninu á Akureyri 2020. „Ég skil fullyrðinguna mætavel því mörg verka minna eru speglun eða framlenging á þankagangi mínum og vangaveltum. Málverkið hefur skipað stóran sess í minni sköpun og fyrsta myndlistarsýningin sem ég hélt 1996 var málverkasýning. Þó ég sé kunnastur fyrir gjörningana mína er það málverkið sem er ódauðlegt og brauðfæðir mig. Það er æðisleg tilfinning að vera besti málari á Íslandi og í hópi fimm bestu málara í heiminum í dag.“

Snorri Ásmundsson er fæddur og uppalinn á Akureyri, en hefur dvalið og sinnt listsköpun til lengri í tíma m.a. í París, Vín, Mexíkó og Los Angeles. Meðfylgjandi portrettverk af Matthíasi Jochumssyni, Matti, frá 2007 má nú sjá á fræðslusýningunni Margskonar II, sem opnuð var í Listasafninu á Akureyrarvöku á dögunum.