Fara í efni
Menning

Nemendur MA voru merktir á stríðsárunum

SÖFNIN OKKAR – 123

Frá Minjasafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Við hernám Breta á Íslandi var leitast við að samskipti við hermenn yrðu sem minnst. Beita átti kaldri kurteisi við hernámsliðið. Einkum var horft til þess að æska landsins yrði ekki fyrir áhrifum af samneyti við hermenn. Breskir hermenn birtust á Akureyri 17. maí 1940 og fjölgaði hröðum skrefum næstu vikurnar.

MA merkið sem um ræðir; þríhyrnd pjatla í íslensku fánalitunum með fangamarki skólans fyrir miðju. Það var saumað í yfirhafnir nemenda.

Þegar skólahald í Menntaskólanum á Akureyri hófst haustið 1940 þótti því mikilvægt að nemendur einkenndu sig með einhverju móti og var ákveðið á kennarafundi um haustið að nemendurnir myndu allir bera merki skólans. Var þessi ráðstöfun gerð til þess að aðgreina nemendur, sem í miklum meirihluta voru drengir, frá hinum ungu setuliðsmönnum. Einnig var þeim bannað að bera önnur merki, svo sem merki kommúnista og nasista sem átti að sporna við illdeilum við setuliðið.

Sigurður Jónsson (1924–2005), stúdent 1944 með merkið í jakka sínum. Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson/Minjasafnið á Akureyri.

Þrír kennarar voru kosnir til þess að undirbúa merkið og var farið eftir teikningu Halldórs Þórhallssonar frá Vestmannaeyjum, nemanda við skólann (stúdent 1945). Merkið var þríhyrnd pjatla í íslensku fánalitunum. Fyrir miðju var fangamark skólans og var merkið saumað í yfirhafnir eða jakka nemenda eða að minnsta kosti þannig að það sæist greinilega. Nemendur munu hafa borið merkið fram á vor 1942, en næsta skólaár var ekki gerð krafa um slíkt.

Halldór Þórhallsson frá Vestmannaeyjum, nemandi við MA (stúdent 1945). Farið var eftir teikningu hans þegar umrætt merki var gert.

Laugardaginn 30. maí opnar á Minjasafninu á Akureyri sýningin Í hers höndum sem byggð er á ljósmyndum, frásögnum og gripum sem tengjast hernámsárunum á Akureyri og í Eyjafirði. Ef þú lesandi góður átt í fórum þínum þetta MA merki hefði starfsfólk Minjasafnsins á Akureyri mikinn áhuga á að skoða það og jafnvel fá lánað eða til varðveislu ef svo bæri undir. Hafið samband við Harald eða Kjartan í síma 4624162 eða með tölvupósti á minjasafnid@minjasafnid.is

Þórir Daníelsson (1923–2008), stúdent 1946. Merkið sést greinilega í jakkanum ásamt tveimur til viðbótar í jakkaboðungnum. Hið neðra er annað MA merki en hitt er óþekkt. Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson/Minjasafnið á Akureyri.

Breskir hermenn tjalda á lóð Menntaskólans á Akureyri sumarið 1940. Ljósmynd: Richard Batemann Jessop/Minjasafnið á Akureyri.

Breskir hermenn fyrir utan Menntaskólann á Akureyri sumarið 1940. Ljósmynd: Richard Batemann Jessop/Minjasafnið á Akureyri.