Fara í efni
Menning

Margvíslegar vörur frá Efnagerðinni Flóru

Ungar stúlkur smakka gosdrykkina Appelsín og Frisko frá Flóru. Ljósmynd Gunnlaugur P. Kristinsson/Minjasafnið á Akureyri.

SÖFNIN OKKAR – 110

Frá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Í yfir 90 ára hafa Íslendingar notað vörur frá Efnagerðinni Flóru í bakstur og eldamennsku. Hér er rifjuð upp saga Flóru og birtar myndir af gömlum umbúðum frá efnagerðinni, en þær eru jafnframt til sýnis á Iðnaðarsafninu.

Árið 1930 stofnaði Kaupfélag Eyfirðinga smjörlíkisgerð í nýju verksmiðjuhúsnæði sínu við Kaupvangsstræti 23. Sama ár setti KEA á markaðinn smjörlíki er kallaðist „Flóra“ og fjórum árum síðar aðra tegund er bar heitið „Gulabandið“. Þessar tvær tegundir smjörlíkis seldi KEA um árabil og voru ákaflega vinsælar báðar tvær, en oft var deilt um hvort væri betra. Árið 1935 var stofnuð sérstök deild innan Smjörlíkisgerðarinnar fyrir efnagerð og hlaut hún einnig nafnið Flóra. Í kjölfarið var farið að framleiða ýmsan varning svo sem ávaxtasafa, krydd, matar- og sósulit, brjóstsykur, búðingaduft, ostahleypi, saft og sultu svo eitthvað sé nefnt.

Framleiðslan jókst næstu árin og þegar smjörlíkisgerðin flutti í nýtt húsnæði árið 1949 hélt efnagerðin áfram í gamla húsnæðinu og ári síðar varð Flóra sérstakt fyrirtæki. Fljótlega var aukin áhersla lögð á sælgætisframleiðslu og bættust meðal annars karamellur við á markaðinn. Árið 1958 var svo byrjað að auglýsa „Flóru-gosdrykki“ með ýmsum bragðtegundum líkt og sjá má í blaðaauglýsingum frá 1958, 1959 og síðar. Það voru þó drykkirnir Appelsín og Frisko sem voru vinsælastir og lífseigastir. Gos- og sælgætisframleiðslu Flóru var að mestu hætt um 1970 og kom þar einna helst til að húsnæðið við Kaupvangsstræti 23 þótti of lítið. Framleiðsla á ávaxtasafa hélt þó áfram enda var það lengi vel sú vara sem efnagerðin framleiddi og seldi mest af. Aðrar vörur eins og kryddtegundir, bökunarvörur og sultur sem höfðu verið framleiddar frá upphafi voru einnig áfram á markaðnum.

Fyrsti verksmiðjustjóri Flóru eftir að það varð sjálfstætt fyrirtæki var Björgvin Júníusson og starfaði hann sem slíkur til 1963. Þá tók Trausti G. Hallgrímsson við stjórninni til ársins 1967, en eftirmaður hans varð Rögnvaldur Bergsson. Rögnvaldur var verksmiðjustjóri Flóru næstu áratugina eða þar til KEA seldi Flóru til þáverandi framkvæmdastjóra Súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu á Akureyri árið 1990, Sigurðar Arnórssonar. Síðar sama ár var Flóra tekin inn í Lindu sem hlutafjárlag Sigurðar. Þá voru helstu framleiðsluvörur Flóru kakó, krydd, steiktur laukur, poppmaís, búðingar, matarolíur og fleira. Smjörlíkisgerð KEA hélt þó áfram að selja Flóru smjörlíki.

Efnagerðin Flóra auglýsir lyftiduft. Samvinnan 48: 1 (1954): bls. 26.

Þegar súkkulaðiverksmiðjan Linda var seld árið 1993 keypti fyrirtækið Ásbyrgi hf. Flóru og í kjölfarið varð til Ásbyrgi-Flóra ehf. sem var til húsa í Frostagötu 2 og hélst framleiðslan því áfram á Akureyri næstu áratugina. Það var svo sumarið 2018 sem fyrirtækið Vilko á Blönduósi keypti Ásbyrgi-Flóru reksturinn ásamt tækjum og vélum og flutt á Blönduós og er þar í dag. Hið gamla vörumerki lifir því enn góðu lífi og eru líklega einhverjar plastdollur með bökunarefni frá Flóru á borð við vanillusykur, negul, matarsóda eða kanil til á heimilum flestra landsmanna.