Fyrstu plöturnar teknar upp á Akureyri 1933

TÓNDÆMI – 27
Tónlist hefur verið í hávegum höfð á Akureyri allt frá síðari hluta 19. aldar og stendur í miklum blóma nú sem endranær. Akureyri.net mun næstu misseri rifja upp eitt og annað úr tónlistarsögu bæjarins í vikulegum pistlum. Þeir birtast alla miðvikudaga._ _ _
Tónlist til útgáfu á 78 snúninga hljómplötum var hljóðrituð í fyrsta skipti hérlendis 1930, að lokinni Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Þar voru að verki upptökumenn frá Columbia útgáfufélaginu í London, á vegum Fálkans, og fóru hljóðritanir fram í Bárubúð við Reykjavíkurtjörn. Það hús stóð þar sem nú er Ráðhús Reykjavíkur.
Columbiamenn tóku m.a. upp tvö lög með Karlakórnum Geysi, undir stjórn Ingimundar Árnasonar, Lýsti sól, stjörnusól og Ég veit eina baugalínu, sem gefin voru út á plötu. Við sama tækifæri var tekinn upp söngur ungs eyfirsks tenórs, Hreins Pálssonar, og komu þau lög út á átta tveggja laga plötum. Hreinn, sem fæddur var í Ólafsfirði, var síðar á ævinni kunnur sem forstjóri Olíuverslunar Íslands. Meðan Hreinn bjó á Akureyri söng hann bæði með Kantötukórnum og Geysi.
Ólafsfirðingurinn Hreinn Pálsson, tenórsöngvari og síðar forstjóri Olíuverslunar Íslands.
Tæknimenn frá Columbia komu öðru sinni til landsins vorið 1933, aftur á vegum Fálkans en að frumkvæði Ríkisútvarpsins. Þá var hljóðritað á Akureyri auk höfuðborgarinnar, m.a flutningur Kantötukórs Björgvins Guðmundssonar á kafla úr Alþingishátíðarkantötu Björgvins, Íslands þúsund ár, við texta Davíðs Stefánssonar, og Þú komst í hlaðið á hvítum hesti með Geysi.
Nokkrir ungir og efnilegir söngvarar sungu í fyrsta skipti inn á plötu þetta vor, m.a. Gunnar Pálsson, Akureyringur að ætt og uppruna, sem lærði söng í Vesturheimi og varð fyrstur Íslendinga til að syngja í úvarp árið 1923.