Flugmenn brugðu sér oft í Steinhólaskála
SÖFNIN OKKAR – 117
Frá Flugsafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Safngripur vikunnar, eða safngripir öllu heldur, eru tvær ljósmyndir sem finna má í Ljósmyndasafni Flugsafns Íslands.
Myndirnar eru teknar við sama tækifæri, en önnur myndin er svarthvít og hin í lit. Þær eru teknar við Steinhólaskála í Eyjafirði þann 4. júlí 1982. Sú svarthvíta er tekin af Pétri P. Johnson en ljósmyndari litmyndarinnar er óþekktur.
Þennan dag höfðu einkaflugmenn á Akureyri lagt leið sína inn Eyjafjörðinn og fengið sér kaffi í Steinhólaskála eins og oft áður. Pétur P. Johnson gerði þessari tilteknu heimsókn skil í flugtímaritinu Flug, sem hann ritstýrði um skeið. Pétur segir:
„Steinhólaskáli innst í Eyjafjarðardal, er vinsæll áningarstaður hjá flugáhugamönnum á Akureyri. Bregða þeir sér oft þangað í kaffi á þeim vélum sínum, sem þurfa litla braut til að lenda eða komast í loftið. Þar njóta þeir góðra veitinga í fögru umhverfi og eru móttökurnar, sem flugmenn fá einstaklega hlýlegar. 4. júlí sl. voru fimm vélar saman komnar á túninu, sem lent var á rétt við skálann (f.v. Piper J-3 Cub TF-CUB, Piper PA-18-150 Super Cub TF-LEO, MS.894A Rallye 220 Minerve TF-OSK, Jodel D-140C TF-ULF og Volksplane VP-1 SS TF-KEA) og hafa þær aldrei verið eins margar í einu. Það skal tekið skýrt fram, að ókunnugir ættu ekki að lenda þarna nema að hafa með sér einhvern, sem hefur sjálfur lent þar vél áður. Það er ekki síður skemmtilegt að heimsækja Steinhólaskála á blikkbelju, en það er mjög vinsælt hjá jarðbundnum Akureyringum (eins og Þingvellir og Hveragerði hjá Reykvíkingum) og er þar selt bæði bensín og almennar ferðamanna vörur auk veitinga.“
Starfsfólk Flugsafnsins óskar lesendum Akureyri.net gleðilegra páska og minnir á að safnið er opið alla páskana kl. 13-16.
Heimild: Flug - tímarit um flugmál - 3. tölublað (01.09.1982) - smellið hér til að sjá blaðið.
