Fara í efni
Mannlíf

Jólabörnin Pétur, Siggi Rún og Dabbi Rún

Þrír viðmælendur mættu til Ásgeir Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþáttinn 10 bestu, jólaþáttinn. „Siggi Rún, Dabbi Rún og Pétur Guðjóns komu og saman ræddu þeir við mig um jólin og allt hitt. Haukur Grettis var á sjó en með í anda,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Það er alltaf svo gaman að fá þá í stúdíó. Hver veit mest um jólin í stórskemmtilegri spurningakeppni, hvert var þeirra uppáhaldslag á árinu og mest spilað og hver er mesta jólabarnið? Jólin rædd á skemmtilegum nótum og við fengum að heyra gamlar klippur frá tímum Frostrásarinnar. Pétur skúbbaði svo einhverju sem ENGINN ætlar að missa af þegar af verður. Þú kemst í alvöru jólaskap eftir þennan þátt,“ segir Ásgeir.

„Þar sem þeir geta ekki verið til friðs og allt fer í vaskinn þegar þeir eru teknir upp þá þarftu að spóla 15 sekúndur áður en þetta byrjar! Gleðileg jól kæri hlustandi og takk fyrir að hlusta á 10 bestu!“ segir Ásgeir.

Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.