Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Óliver Andri Ásgeirsson

Óliver Andri Ásgeirsson gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu
 

„Það sem gerir þennan þátt aðeins frábrugðinn fyrri þáttum er að viðmælandinn er sonur þáttarstjórnanda,“ segir Ásgeir í kynningunni á þættinum. „Farið var um víðan völl, mikið staldrað við í tónlist og var sér umræða um „lánuð“ lög eða svokölluð sömpl sem var gaman að velta sér uppúr. Gömlu lögin og þau nýju spiluð og rædd. Lögin hans Ólivers fengu að vera með og var það krefjandi fyrir hann ad velja þau.“

Feðgarnir hófu hins vegar þáttinn „á lifandi umæðu um tilkynningu Jóns Gnarrs á Facebook um yfirvofandi tilkynningu hans a þriðjudag eftir páska kl. 20:00 hvort hann fari fram eða ekki í komandi forsetakosningum. En feðgarnir deila sameiginlegri aðdáun á Jóni og hans verkum. Einnig tónlistarmanni sem er á listanum hans Ólivers sem þeir hafa séð LIVE í Oslo á sínum tíma.“

Óliver stundar nám í arkítektúr í Listaháskóla Íslands og segist loksins hafa gaman af skóla. Kveðst hafa fafa fundið sína hillu „með öllu því góða sem því fylgir. Hann bjó um tíma í San Fransisco þar sem hann nam og spilaði fótbolta á styrk. En fleiri höfuðhögg í boltanum leiddu til ákvarðanar sem hann þurfti að taka og var verulega erfið en skilaði honum þangað sem hann er í dag. Það er margt framundan hjá þessum unga manni,“ segir Ásgeir.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.