Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Sumarliði Helgason

Sumarliði Helgason er gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu. Sumarliði er sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs Akureyrarbæjar – en margir þekkja hann sem tónlistarmanninn Summa Hvanndal.

„Í dag var mikið rætt um tónlist eðlilega. En Sumarliði er í nokkrum hljómsveitum í dag og hefur haldið alls kyns viðburði og heldur því áfram. Eyrarrokk og Norðurljósin svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Hann talar um fjölskylduna sína sem er samheldin, hvernig hann kynntist konunni, hvaða lag var vinsælast þegar þau hittust fyrst, og um börnin sín þrjú. Ekki margir vita að elsti sonur hans er að vinna með risasatórum nöfnum í bransanum, sko erlendis. Sonur hans á þrjár platínu plötur (yfir milljón eintök seld) og vinnur þetta allt úr stúdíóinu sínu í Rimasíðunni. Eitt lag hans á yfir 250 milljón streymi á Spotify og á hann samning við SONY risann.“

Margt er framundan hjá Summa, segir Ásgeir: „Tenerife, semja, gigg út árið með öllum hljómsveitunum sínum í bland. Hann hlustar á allt og ef það er gott og vel samið þá höfðar það til hans. Hann er með sín 10 lög og svo förum við líka yfir lögin sem hann hefur samið sjálfur. Örugglega mörg þar sem koma á óvart. Margir hittarar.

Algerlega frábært spjall við mætan mann Summa Hvanndal. Hvernig varð Hvanndalsnafnið til? Allt kemur fram.

Takk fyrir gott spjall og takk fyrir að hlusta!“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.