Fara í efni
Mannlíf

Snorri Ásmundsson í Vendipunkti Ásgeirs

Akureyringurinn Snorri Ásmundsson er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsins Vendipunkts. Snorri hefur verið áberandi sem listamaður í fjöldamörg ár og komið víða við.

Ásgeir segir í kynningu á þættinum:

Hvar skal byrja þegar maður talar við Snorra Ásmunds? Hann er listamaður í húð og hár, hefur boðið sig fram til forseta, hann ætlaði að verða formaður sjálfstæðisflokksins. Hann er talinn vera færasti píanóleikari Evrópu og hann stofnaði tvö pólítísk öfl sem boðið hafa fram, á Akureyri sem Kattarframboðið og sem Vinstri hægri snú í Reykjavík. Að auki er hann mikill dýravinur og sérstaklega tengir hann við ketti. Af hverju?

Er eitthvað sem Snorri hefur ekki gert? Er eitthvað Snorri ætlar ekki að gera og ... ef ég byði honum eina milljón útborgað á mánuði fyrir það eitt að hann mætir til vinnustofu sinnar, málar á sínum hraða og ég fæ ágóða mynda hans; hverju svarar Snorri þá?

  • Smellið hér til að hlusta á þáttinn:

Vendipunktur - Snorri Ásmundsson